Endurnýjun þjónustusamninga við björgunarsveitir á svæðinu

Ísafjarðarbær hefur endurnýjað þjónustusamninga við allar björgunarsveitir á svæðinu Björgunarsveitin Björg Suðureyri, Björgunarsveitin Tindar Hnífsdal, Björgunarsveitin Sæbjörg á Flateyri og Björgunarsveitin Dýri á Þingeyri. Samningur við Björgunarfélag Ísafjarðar var endunýjaður 2023. Samningarnir tryggja áframhaldandi samstarf sveitarfélagsins og björgunarsveitanna, sem gegna lykilhlutverki í öryggismálum íbúa allt árið um kring.

Samningarnir kveða á um að björgunarsveitirnar veiti sveitarfélaginu fjölbreytta þjónustu, þar á meðal björgunaraðgerðir, forvarnir, viðbragðsvaktir, leit og öryggismál. Hver sveit skuldbindur sig til að vera til taks við allar helstu aðstæður á sjó og landi, auk þess sem þeim er tryggð húsnæðisaðstaða og stuðningur í samræmi við ákvæði samninganna.

Í samningunum eru jafnframt skilgreindar skyldur sveitarfélagsins, svo sem húsnæðis- og rekstrarstuðningur, auk þess sem kveðið er á um sameiginlega ábyrgð á viðhaldi eigna og búnaðar eftir því sem við á.

Hvetjum íbúa til að kynna sér starf sveitanna: