Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 70

Svæðisskipulagsnefnd átti fund þar sem á dagskrá var að afgreiða tillögu Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050. Farið var yfir samantekt á athugasemdum og umsögnum svæðisskipulagsnefndar. Þar með samþykkti nefndin endanlega útgáfu svæðisskipulags og fylgiskjala. Þetta kom því til afgreiðslu bæjarstjórnar nú á síðasta bæjarstjórnarfundi kjörtímabilsins. Eftir kosningar þurfa svo öll sveitarfélögin að tilnefna nýja fulltrúa í svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða sem er starfandi á meðan svæðisskipulagið er í gildi. Ég er virkilega stolt af þessu svæðisskipulagi, það var gaman að taka þátt í vinnunni og það sem meira er, við náðum að halda okkur við þá tímaáætlun sem við settum okkur í upphafi.


Opið hús var haldið um skipulagsbreytingar og framkvæmdir vegna fyrirhugaðra sjóbaða á Hvítasandi í landi Þórustaða í Önundarfirði. Á þessu opna húsi fóru Erla Margrét skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar og Hrafnhildur Brynjólfsdóttir, skipulagsfræðingur hjá Eflu, yfir þær skipulagstillögur sem eru í kynningu. Þá kynnti forsvarsfólk verkefnisins hugmyndina, markmið og framtíðarsýn verkefnisins. Það mætti ágætur fjöldi íbúa en opna húsinu stýrði Magnús Bjarnason frá Vestfjarðastofu.


Ungmennaráð Vestfjarða stóð fyrir framboðsfundum á Vestfjörðum. Einn slíkur var í Edinborgarhúsinu í vikunni. Þau skipulögðu fundinn og sáu um alla framkvæmd. Mjög flott hjá þeim og mikilvægt að minna unga fólkið okkar á mikilvægi þess að taka þátt í að móta samfélagið með þátttöku í kosningum.


Í vikunni fór fram stjórnendaþjálfun fyrir forstöðumenn Ísafjarðarbæjar og var þjálfunin í samstarfi við fyrirtækið Mental. Teknir voru tveir hálfur dagur í fræðslu og verkefnavinnu. Vona að þetta komi fólki að gagni en það er alveg ljóst að á stórum og fjölbreyttum vinnustað eins og Ísafjarðarbæ þarf að styðja vel við starfsfólkið, en það tekst á við allskonar áskoranir í starfi og öll fræðsla sem þessi hjálpar og styrkir starfsfólkið.

Frá stjórnendaþjálfuninni sem Hilja frá Mental sá um.

Aðalfundur Fastís fór fram í vikunni. Þá var vorfundur Almannavarnanefndar og einnig settumst við Axel og Eyþór niður með fulltrúa frá Vesturferðum og Barða Ingibjarts í Súðavík til að ræða aðgengi og lagfæringar við Valagil í Álftafirði en þar er Ísafjarðarbær landeigandi.


Samtök tæknimenntaðra starfsmanna sveitarfélaga (Sats) hélt árlega ráðstefnu sína á Ísafirði í vikunni. Ég hitti þau einn seinnipartinn og fór með með um eins og t.d. á Sundabakkann, þjónustumiðstöðina (áhaldahúsið), kíktum á vatnsbólið (fossinn) í göngunum, Flateyri og Suðureyri.

Frá heimsókn "Sats" í áhaldahúsið.

Fossinn í göngunum.

Frá heimsókn "Sats" á Flateyri, þar spjallaði Gumbi við þau.

 

Núna er mjög mikið af svona „síðasti fundur þessa kjörtímabils“.
Bæjar- og sveitarstjórar á Vestfjörðum áttu sinn síðasta fund á þessu kjörtímabili. Það er Sirrý á Vestfjarðastofu sem heldur utan um þessa fundi. Bæjarráðsfundur sá síðasti á þessu kjörtímabili var haldinn í vikunni. Sitjandi bæjarstjórn átti sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem var efnismikill. Þar bar hæst að ársreikningur 2025 var samþykktur en það urðu engar breytingar á honum á milli umræðna í bæjarstjórn. Ég skrifaði pistil um helstu niðurstöður ársreikningsins á heimasíðu bæjarins sem má nálgast hér: Pistill bæjarstjóra um ársreikning 2025

Ég í pontu á síðasta bæjarstjórnarfundi þessa kjörtímabils.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 2022-2026 eftir sinn síðasta bæjarstjórnarfund þann 7.maí 2026.

Bæjarráð átti sinn síðasta fund í vikunni. Það er skipað þeim Jóhanni Birki, Kristjáni Þór og Gylfa. Við Bryndís erum starfsmenn þess.

Á fundinum var ný forvarnar- og lýðheilsustefna Ísafjarðarbæjar 2026-2031 samþykkt og einnig svæðisskipulag Vestfjarða (eins og ég minntist á fyrr í þessum pistli). Bæjarstjórn samþykkti einnig að úthluta landi til skipulagsgerðar og uppbyggingar á hóteli, sundlaug og líkamsrækt á Hauganesi í Skutulsfirði og viljayfirlýsingu um úthlutun á lóð til HG. Það er mikil uppbygging í farvatninu og mikil stemming í bæjarstjórn á sínum síðasta fundi. Við fórum á Tjöruhúsið eftir fundinn og tókum „síðustu kvöldmáltíðina“ á meðan aðrir gestir eins og t.d. Rotaryklúbburinn sem þar var staddur var að taka sinn 5000 fund og máltíð.

 

Gréta og Jói frá Rúv mættu á lokahátíð Púkans og tóku viðtöl við púkana.

Lokahátíð Púkans 2026 fór fram á föstudaginn. Púkinn er vettvangur fyrir vestfirsk börn að kynnast listum og menningu á fjölbreyttan hátt og einnig vettvangur samstarfs á Vestfjörðum. Púkinn er hugsaður sem vettvangur fyrir menningu með börnum, menningu fyrir börn og menningu sem börn skapa sjálf. Púkinn var haldinn núna í fjórða skipti og hefur fest sig í sessi sem ákveðinn vorboði, þá fáum við oft að sjá fjölbreytta uppskeru vetrarins af menningarstarfi með börnum og menningarstarf barnanna sjálfra. Það er gríðarlega mikilvægt að rækta menningarlega hugsun meðal barna til þess að þau verði sterkir einstaklingar með frjóa og skapandi hugsun. Lokaafurðin á hátíðinni er það sem börnin sjálf hafa verið hvött til að skapa undir handleiðslu listafólks. Í ár nutu púkarnir (það er mjög vestfirskt að kalla börn púka) leiðsagnar hönnunarteymisins Þykjó, tónlistardúói Sigga og Ingibjargar og Stjörnu-Sævars. Það var frumflutt tónverk og töfrandi stuttmyndir í glæsilegri umgjörð okkar gamla en fallega Ísafjarðarbíós.

Frá lokahátíð Púkans.

Frá lokahátíð Púkans.

 

Það er pínu skrítið að sitja á hliðarlínunni og fylgjast með framboðunum í yfirstandandi kosningabaráttu verandi ekki þátttakandi í henni sjálf. Ég hef tekið mjög virkan þátt í sveitarstjórnarkosningum núna þrjú síðustu kjörtímabil, í Borgabyggð 2014 og 2018 og svo í Ísafjarðarbæ 2022. Allar eiga þær það sammerkt að það sama brennur á fólki, þjónusta. Þjónusta við íbúa og í því sambandi er öllum tíðrætt um þessa blessuðu ferla. Ég skrifaði stuttan pistil um ferlavinnuna í Ísafjarðarbæ sem er aðgengileg á heimasíðu bæjarins; Pistill bæjarstjóra um ferlagreiningu

Frá fyrstu æfingu á hlaupanámskeiði sem Ingibjörg Elín leiðir.

Við Dúi ákváðum að skrá okkur á 6 vikna hlaupanámskeið hjá Ingibjörgu Elínu þar sem markmiðið er að fara um nýjar slóðir utanvega í Skutulsfirði.

Gamlir félagar úr Wow cyclothon 2016 og 2017. Þarna vorum við að fara yfir bókhaldsgögn sem hafa verið varðveitt til minningar.

Ég endaði vikuna með því að fara suður til að halda uppá 10 ára afmæli wow-cyclothon-þátttöku Skógræktarinnar. Það er sennilega eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert hvað svona hreyfingaráskorun varðar að hjóla hringinn í kringum Ísland í góðum hópi. Það var ákveðið að fara í þetta verkefni á sínum tíma meðfram þeirri stóru breytingu sem varð 2016 þegar sameining Skógræktar ríkisins og fimm landshlutaverkefna í skógrækt átti sér stað og úr varð Skógræktin. Það var stór sameining sem ég tók þátt í að framkvæma, bæði hvað undirbúning varðaði og einnig innleiðingu. Það þótti því upplagt að efna til svona hópeflis og tíu einstaklingar hjá hinni nýju stofnun fóru í þetta hjólaverkefni. Stofnun með starfsstöðvar út um allt land kom því sterk inn á hliðarlínunni þar sem okkar beið hvatning víðsvegar um land. Við vorum rúma 45 klukkustundir að hjóla þessa ríflegu 1400 kílómetra. Því náðum við með góðum undirbúningi, samheldni og seiglu. Það var gaman að hitta hópinn og rifja upp þetta stórskemmtilega verkefni.


Fram undan er síðasta vikan fyrir sveitarstjórnakosningar. Áhugaverðir tímar fram undan. Mætum öll á kjörstað 16.maí!