Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 68

Frá Suðureyri.
Frá Suðureyri.

Jæja….og áfram held ég að koma með sunnudagspistla þar sem ég lít yfir liðna vinnuviku.
Á mánudaginn var fundur um endurskoðun byggðaáætlunar en nú um þessar mundir gefst okkur tækifæri á að koma með ábendingar inn í þá vinnu. Ný uppfærð byggðaáætlun verður lögð fram á þingi í haust.
Við áttum góðan fund með fulltrúum frá lögreglunni og Snjóflóðasetrinu. Farið var yfir ýmislegt sem kom upp í vonda veðrinu í mars en talsverð snjóflóðahætta vofði yfir og þá féllu allmörg flóð utan byggða.
Á vikulegum stjórnendateymisfundi fórum við yfir vinnu við verkferlana sem við höfum verið í síðustu mánuði. Við fórum yfir þær þarfir sem við höfum varðandi verkbeiðnakerfi sem til stendur að taka upp og innleiða nú í kjölfar verkferlavinnunnar.

Ég fór á fyrirlestur á Bókasafninu í tilefni af viku 17 sem er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna en bókasöfn landsins standa fyrir þessu og í ár er hún tileinkuð heimsmarkmiðinu um ekkert hungur. Þess vegna hélt Salóme Ingólfs matvæla- og næringarfræðingur fyrirlestur um leiðir sem fólk getur farið til að draga úr matarsóun og um leið að spara tíma og pening. Fyrirlesturinn hét „Afskrifað í pottinn“

Salóme að fræða okkur um leiðir til að nýta matvæli betur "Afskrifað í pottinn"

 

Á fyrirlestrinum á bókasafninu var hægt að grópa með sér allskonar varning sem var kominn á síðustu dagsetningu.

 

 

Það var góður fundur sem við áttum með MÍ, Fræðslumiðstöðinni og Menntavísindasviði um samvinnu vegna eflingu menntunar starfsfólks á leikskólastigi. Þetta er mál sem kom mjög skýrt fram í vinnu Ísafjarðarbæjar við endurskoðun menntastefnu. Það stendur til að þær menntastofnanir sem bjóða uppá menntun sem nýtist starfsfólki leikskóla muni halda kynningu á námsframboðinu núna í maí.
Fundur um stöðu á undirbúningi vegna byggingu verkmenntahúss við Menntaskólann á Ísafirði var þá einnig í vikunni. Þar er það að frétta að „ríkið“ þarf að ákveða hvort farið verði í alútboð á verkefninu eða hvort það skipti þessu upp í nokkra útboðshluta og byrji á hönnun og undirbúningi. Við hjá bænum erum á því að það sé skynsamlegra svo verkefnið komist þá af stað á árinu en það gæti líka unnist samhliða þeirri vinnu sem við erum á lokametrunum með varðandi deiliskipulagið.
Það var framboðsfundur á miðvikudagskvöld í Edinborgarhúsi. Það var mbl sem stóð fyrir þessum fundi, ágætis mæting.


Við áttum góðan fund um hleðslustöðvar og hvað við sjáum fyrir okkur í þeim efnum á Vestfjörðum þ.e.a.s. hvar það er sem okkur vantar hleðslustöðvar. Þá vorum við að skoða þær reglur sem eru settar fram varðandi styrki til uppsetningu stöðva sem ríkið er að auglýsa en þar eru skilyrðin ansi stórar stöðvar en ef ég segi þetta í mjög einföldu máli þá skiptir meiru máli að hafa þær fleiri og minni en færri og stærri.

Við hittumst nokkrar úr vinnunni í prjónó í Netagerðinni eitt kvöldið í vikunni.

 

Það er verið að byggja iðnaðarbil á Suðureyri, aðeins öðruvísi en vanalega.

Ég fékk Jón skástjúptengdason til að skipta um dekk á bílnum mínum   

 

Ég átti gott spjall við David Cook sem er aðjúnkt við umhverfis og auðlindadeild HÍ og er að taka þátt í rannsókn þar sem verið er að skoða hvernig norðurslóðasveitarfélög eru að bregðast við ísbjarnakomum. Mjög skemmtilegt spjall.
Við Margrét Geirs áttum fund með fulltrúum Þroskahjálpar um byggingu húsnæðis á Ísafirði. Þar er mikill vilji til að fara í samstarf. Orð eru til alls fyrst, en ef af yrði þá myndum við sjá mikla framför í aðgengismálum en í dag erum við með frekar erfitt húsnæði aðgengislega séð.
Byggingarnefnd slökkvistöðvar fundaði í vikunni en fyrir nefndinni lágu drög að útboðsgögnum vegna útboðs á fyrsta áfanga framkvæmda við nýja slökkvistöð á Suðurtanga, sem tekur til burðarvirkis mannvirkisins. Nefndin lagði til að vísa málinu til bæjarráðs til samþykktar með það að markmiði að fá heimild til að fara í útboð og hefja innkaupaferli verksins á grundvelli fyrirliggjandi útboðsgagna.

Ingi Bjössi bæjarlistamaður var að flytja sig um set, úr Hnífsdal og inní Holtahverfi, þar mun skipasmíðastöðin hans opna.


Í gær var okkur Dúa boðið í 50 ára afmæli Kiwanisklúbbsins Bása í Sigurðarbúð. Þetta var virkilega góð veisla, matur, kökur, ræður og skemmtiatriði. Gunnari Veturliðasyni var veitt ein æðsta orða Kiwanis en hann kom fljótlega inní klúbbinn eftir stofnun hans og hefur verið í gegnum árin mjög ötull meðlimur og Kiwanisklúbbnum til mikils sóma. Það sem mér finnst magnað við þessa hreyfingu er að hennar helsta markmið er að vinna að því að bæta líf barna í heiminum, það er fallegt en flest þekkjum við til reiðhjólahjálmaverkefnisins. Þá var þarna happdrætti sem ég var svo heppinn að fá aðalvinninginn, pizzustein.

Frá afmælisboði Kiwanisklúbbsins Bása.

Frá afmælisboði Kiwanisklúbbsins Bása, við fórum heim með happdrættisvinning, nýjar húfur og fána fyrir bæjarstjóraskrifstofuna.

Með Maraþonmönnunum Fjölni og Árna ásamt Marinó forseta Kiwanisklúbbsins Bása. 

Sumardagurinn fyrsti var í vikunni, fínasta veður þann dag og íbúar virkir í útivist og samveru. Það sama var uppá teningnum um helgina og í dag er Stóri plokkdagurinn og fólk víða útivið að týna rusl sem komið hefur í ljós þegar snjórinn hefur vikið.

Tókum hlaupatúr á Flateyri í vikunni, hlupum útfyrir Klofning.

 

 

Hrefna og Katrín eru alsælar með hlaupabrettið á Flateyri. Ég fékk þá brilliant hugmynd þegar ég kom við þarna að það væri upplagt að setja útihreystitæki þarna fyrir utan... 

 


 

Plokkararnir eru komnir í Bónus!

Tókum hlaupatúr á Flateyri í vikunni, hlupum útfyrir Klofning.