Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 64

Það var fallegt veður hér vestra á miðvikudag.
Það var fallegt veður hér vestra á miðvikudag.

Dagbók bæjarstjóra dagana 23.–29. mars 2026, í 64. viku í starfi.

Stærsta frétt vikunnar varðar tilhögun leikskólamála á Ísafirði, en við tilkynntum miklar breytingar sem munu eiga sér stað í sumar. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt að leggja fyrir bæjarstjórn tillögu um að leggja niður leikskólann Tanga frá og með 8. júlí 2026. Tillagan byggist á heildstæðum faglegum og rekstrarlegum forsendum. Hún miðar að því að tryggja samfellu í leikskólagöngu barna, styrkja faglegt starf og nýta mannauð og rými innan leikskólakerfisins á skilvirkari hátt. Settar verða upp færanlegar einingar við báða leikskóla til að mæta rýmisþörf. Eftir páska mun bæjarstjórn taka við tillögum nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla, þar sem fjallað verður um varanlegar lausnir í Skutulsfirði.

Tillagan fer fyrir bæjarstjórn á fundi hennar 1. apríl næstkomandi. Ef tillagan verður samþykkt munu börn fædd árið 2021 halda áfram í sínum núverandi leikskólum, Sólborg og Eyrarskjóli.
Málið er þó ekki endanlega afgreitt enn, en okkur fannst mikilvægt að starfsfólk, foreldrar/forráðamenn og íbúar fengju þessar upplýsingar áður en dagskrá bæjarstjórnarfundar verður birt á mánudaginn (á morgun 30. mars). Ef tillagan verður samþykkt fer af stað skipulögð innleiðing strax eftir páska, í góðu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk.

Við Margrét Geirs, sviðsstjóri velferðarsviðs fórum á Suðureyri í vikunni. Þar heimsóttum við félagsstarf eldri borgara í Sunnuhlíð. Þar var margt um manninn, fólk sat þarna við handavinnu, spjall og svo bauð Rósa að sjálfsögðu upp á kaffi og kökur. Eftir þessa heimsókn fórum við á kaffihúsið og sátum fyrir svörum gesta og gangandi.


Í heimsókn í félagsstarfi eldri borgara á Súgandafirði. Kaffi í Sunnuhlíð, spjall og sprell.

Í þessari umferð „skrifstofa bæjarstjóra í byggðakjörnum“ á ég eftir að komast á Þingeyri en ég varð að fresta för þangað um daginn vegna ófærðar. Ég finn góðan dag í apríl til þeirrar ferðar.

Stjórn Byggðasafns Vestfjarða fundaði í Neðstakaupstað í vikunni. Þar fengum við kynningu á safnastefnunni og grisjunarstefnu en hvort um sig þarf að uppfæra árlega. Jóna Símonía kynnti fyrir okkur hönnun á útisvæðinu en þar er verið að horfa til þess að gera aðgengi betra, bæta aðstöðu til útisýninga og „ramma“ svæðið betur inn.

Í undirbúningi er sýning í Krambúðinni í Neðstakaupstað sem fjallar um Guðrúnu Vigfúsdóttur vefara og Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði. Guðrún kenndi við skólann í 44 ár og var ein af þeim öflugu konum sem kom að honum. Upphaflega voru það skörungarnir í Kvenfélaginu Ósk sem stofnuðu skólann, með frú Camillu Torfason, (síðar formann Kvenréttindafélags Vestfjarða) í fararbroddi. Kvenfélagskonurnar vildu stuðla að menntun kvenna og réttindum þeirra og stóðu alla tíð þétt við bak skólans.

Guðrún Vigfúsdóttir var fengin til að kenna vefnað við skólann stuttu áður en nýja skólabyggingin var byggð, sem nú hýsir Tónlistarskólann. Hún var húsmæðraskólagengin og þótti bera af í vefnaði og hannyrðum. Síðar stofnaði hún Vefstofu Guðrúnar Vigfúsdóttur á Ísafirði og varð landsþekkt fyrir fallegar flíkur og að leggja áherslu á að nota íslenska ull. Á sýningunni í Krambúðinni, sem opnar eftir rúman mánuð eða 1. maí, verður hægt að fræðast um merkilegt upphaf Húsmæðraskólans og Vefstofu Guðrúnar. Þar verða jafnframt munir og flíkur sem ofnar voru á Vefstofunni, ásamt munum og jafnvel húsmunum úr Húsmæðraskólanum. Það er þó alveg ljóst að Húsmæðraskólinn og svo Vefstofa Guðrúnar, hefðu aldrei orðið til ef framsýnar Kvenfélagskonur hefðu ekki tekið af skarið fyrir 115 árum og barist fyrir stofnun Húsmæðraskóla.

Þá er einnig rétt að minna á að á miðvikudaginn 1. apríl kl. 14-17 verður loppumarkaður í Turnhúsi í Neðstakaupstað þar sem verða til sölu ýmsir umfram munir úr Húsmæðraskólanum Ósk (bækur, bollar, dúkar og fleira) en ágóðinn fer í að bæta búnað til sýningahalds.

Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða fundaði í vikunni.

Þá var að sjálfsögðu bæjarráðsfundur þar sem stærsta málið var framlagning á ársreikningi 2025 en bæjarráð vísaði honum til fyrri umræðu í bæjarstjórn sem fram fer 1. apríl næstkomandi. Ég mun birta pistil um ársreikninginn í komandi viku en í stuttu máli, þá getum við vel við unað um árangur í rekstri.

Á mánudaginn rak margan í rogastans þegar öllum fánum norðurlandanna var flaggað við stjórnsýsluhúsið en tilefnið var að þann dag 23. mars var dagur Norðurlanda. Þá fögnuðum við elsta svæðasamstarfi í heimi, norrænu samstarfi Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Álandseyja, Færeyja og Grænlands með því að flagga. Nánar um samstarfið á norden.org


Hér var flaggað á degi norðurlandanna.

Ég kláraði vinnuvikuna á fundi með Menntavísindasviði Háskóla Íslands sem þau boðuðu til, til að ræða ræða samvinnu um eflingu leikskólastigsins og menntun leikskólastarfsfólks á Vestfjörðum. Það er sannarlega þarft verkefni en við hér erum ekki í minni vandræðum en önnur sveitarfélög hvað það varðar að fá fólk til starfa á leikskólunum. Við þurfum því að vinna að lausnum og það gerum við saman.


Á fundi með menntavísindasviði, Fræðslumiðstöð og Vestfjarðastofu um menntun leikskólakennara.

Þetta var vika óveðurs og ófærðar. Ég ákvað að lágmarka veður-akstursstress og streitu sem snýr að því að keyra á milli Suðureyrar og Ísafjarðar í snjóblindu og byl, gisti því tvær nætur hjá Möggu mágkonu. Gott að eiga góða að.

Við Dúi fórum á yndislega leiksýningu Menntaskóla Ísafjarðar. Þau réðust ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og settu upp Rómeó og Júlíu. Stórkostleg leikgerð og þýðing Hallgríms Helgasonar. Leikurinn frábær og umgjörðin falleg.


Sólrisuleikrit ársins Rómeó og Júlía.

Heyrðu! Svo opnaði Aldrei búðin á föstudaginn í húsnæði Vesturferða í Edinborgarhúsinu, Aðalstræti 7 en hún verður opin næstu daga frá kl. 13 og ýmist til 16, 17 eða 18, nánar um það á aldrei.is.


Aldrei búðin er opin!

Pökkuð vika fram undan, bæjarstjórnarfundur, opnunarhátíð skíðavikunnar, Aldrei og páskar! Kíkið á www.paskar.is.


Gönguskíðasjálfa


Fastur mánudagsliður, kirkjukórsæfing.