Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 56

San Sebastian
San Sebastian

Dagbók bæjarstjóra dagana 26. janúar – 1. febrúar 2026, í 56. viku í starfi.

Sumarfrí.

Seinni viku frísins hefur verið varið á Spáni. Við byrjuðum í Torrevieja, í íbúðinni okkar þar. Fyrir utan að nota tækifærið og sofa út alla morgna þá dyttuðum við aðeins að íbúðinni, tókum góða hlaupa- og göngutúra og hittum vini. Við vörðum einum degi í Alicante og flugum svo til Bilbao, keyrðum þaðan til San Sebastian á norður Spáni þar sem við enduðum þetta frí með stæl í góðum hópi fólks frá Súganda.

Þegar þetta er skrifað erum við komin út á völl í Bilbao, fljúgum um Amsterdam heim, lendum seint í kvöld og keyrum vestur á Súganda á morgun, mánudag. Framundan er pökkuð vinnuvika. Hlakka til!


Uppáhaldstapasstaðurinn í Alicante heitir Sento. Mælum með.


Með vinum okkar á Torrevieja, Hilmari og Áslaugunum.


Appelsínurnar eru bestar á Spáni.


Í Torrevieja eru vorverkin í fullum gangi.


Það var aðeins gripið í þrif.


Við fórum í fótsnyrtingu, ekki veitti af!


Í Torrevieja.


Hvíldar sjálfa.


Tókum ljómandi fínan hlaupatúr í San Sebastían, í norðan roki og úrhelli.


Í sædýrasafninu í San Sebastían.


Í San Sebastían.


Í San Sebastían.