Dagbók bæjarstjóra 2025: Vika 21

Kappróður á lóninu á Suðureyri.
Kappróður á lóninu á Suðureyri.

Dagbók bæjarstjóra dagana 26. maí–1. júní 2025, í 21. viku í starfi.

Þrír íbúafundir voru haldnir í vikunni, um þjónustustefnu Ísafjarðarbæjar. Þjónustustefna Ísafjarðarbæjar er unnin samkvæmt 130. gr. sveitarstjórnarlaga en þar er kveðið á um að sveitarstjórn skuli móta sér stefnu sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðarkjörnum innan sveitarfélagsins. Stefnan er sett fram fyrir komandi ár og næstu þrjú ár á eftir og er unnin samhliða fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir sama tímabil. Við hófum þessa vinnu í byrjun árs en þetta er í fyrsta sinn sem við vinnum svona stefnu hér. Íbúafundirnir voru haldnir á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri og svo liggur stefnan til kynningar inni á Betra Ísland og gefst íbúum tækifæri til að kynna sér hana og koma með ábendingar og/eða athugasemdir næstu tvo mánuði eða út júlí. Hvet alla íbúa til að kynna sér málið, betur sjá augu en auga.

Á íbúafundi í félagsheimili Súgfirðinga.
Á íbúafundi í félagsheimili Súgfirðinga.

Á íbúafundi í félagsheimilinu á Flateyri.
Á íbúafundi í félagsheimilinu á Flateyri.

Það var reyndar þannig að ýmislegt annað kom upp í umræðum á fundunum sem hafði lítið með stefnuna sjálfa að gera en mikilvægt þó að kæmi fram og snýr t.d. að sveitarfélaginu og starfseminni á hinum ýmsu sviðum. Það er gott og gagnlegt að hitta íbúana á svona fundum en ég verð samt að vera hreinskilin með það að mér finnst alveg í lagi að fólk komi fram við aðra eins og það vill að það sé komi fram við sig. Kurteisi kostar ekkert. Ég þreytist ekki á að segja þetta.

Stjórn og starfsfólk Sambands íslenskra sveitarfélaga kom hingað í heimsókn, við áttum góðan fund með þeim, þar sem ég rúllaði yfir kynningu á sveitarfélaginu, auk þess að rædd var stefna og aðgerðaáætlun Ísafjarðarbæjar um móttöku skemmtiferðaskipa, skipulagsmál og annað.

Fjölmargir aðrir fundir voru í vikunni, eins og gengur, til dæmis með framkvæmdarstjóra Hjallastefnunnar sem rekur einn leikskóla á Ísafirði, svæðisskipulagsnefndin fundaði, framkvæmdarráð velferðaþjónustu Vestfjarða, byggingarnefnd slökkvistöðvar og margir aðrir fundir. Þá fékk ég nokkrar heimsóknir á skrifstofuna, Kristján Freyr rokkstjóri kíkti til dæmis við og áttum við gott spjall um Aldrei fór ég suður.

Ég fór í messu á uppstigningardag þar sem biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir predikaði. Eftir messuna og messukaffið hittumst við á Silfurtorgi þar sem við lögðum lokahönd á regnbogamálninguna.

Ísafjarðarkirkja. Söngfólk heiðrað fyrir kórastarf.
Á uppstigningardag var fólk heiðrað fyrir 30 ára kirkjukórastarf.

Guðrún biskup og Sigríður bæjarstjóri mála regnbogann á Silfurtorgi.
Guðrún biskup og Sigríður bæjarstjóri mála regnbogann á Silfurtorgi.

Tónlistarskólanum á Ísafirði var slitið með hefðbundnu sniði í vikunni en þar voru veittar ýmsar viðurkenningar. Ágústa Þórólfsdóttir píanókennari var heiðruð fyrir starf í þágu tónlistar en hún hefur verið kennari við skólann síðan 1982 og hefur starfað með öllum fimm skólastjórum Tónlistarskólans!

Ágústa fyrir utan Ísafjarðarkirkju með blómvönd í fanginu.
Ágústa Þórólfsdóttir píanókennari við Tónlistarskóla Ísafjarðar fékk heiðursverðlaun skólans.

Ég fór, eins og fjölmargir aðrir fulltrúar sem höfðu sent inn umsögn vegna frumvarps um breytingu á veiðigjöldum, á fund atvinnuveganefndar til að fylgja eftir umsögn Ísafjarðarbæjar um frumvarpið. Í umsögn Ísafjarðarbæjar kom fram að við tækjum heilshugar undir umsögn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, þá lögðum við áherslu á fyrirsjáanleika þegar slíkar breytingar eru boðaðar, það skiptir máli fyrir fyrirtækin svo uppbygging og fjárfestingaráform þeirra séu í takt við boðaða stefnu stjórnvalda. Það er svolítið sérstakt að skynja áhyggjur sem liggja í loftinu vegna þessa og það á þessari helgi.

Við fögnuðum sjómannadeginum hér eins og annarsstaðar á landinu. Ég tók virkan þátt í gleðinni á Suðureyri en við kíktum einnig í sjómannadagskaffi á Flateyri. Sjómannadagshátíðin á Suðureyri stóð reyndar í fleiri daga, byrjaði á miðvikudagsköldi með krakkabíói, þá var uppistand, óvissuferð fyrir unglinga, trúbador, pubquiz, kappróður, froðudiskó, hátíðarkvöldverður, ball og ýmislegt fleira.

Væb og froðudiskó á lóðinni við Grunnskólann á Suðureyri.
Væb og froðudiskó!! Svakalega gaman og ósvikin gleði.

Babies flokkurinn leikur undir dansi á sjómannadagsballi á Suðureyri.
Ball með Babies flokknum, klikkar ekki!

Í sjómannadagskaffi á Flateyri.
Í sjómannadagskaffi á Flateyri, Toggi var fyrstur í röðinni.
Þær klikka sko ekki á hlaðborðinu kvenfélagskonurnar!

Ég bauð uppá bakgarðsskemmtiskokk á laugardagsmorgninum en það fór þannig fram að fólk hljóp eða gekk ákveðinn hring. Þessi hringur var farinn á 10 mínútna fresti. Farnir voru fimm hringir og það var gaman að sjá flotta mætingu en það voru yfir 30 manns sem mættu, á öllum aldri.

Sjálfa af bæjarstjóra og hópnum sem tók þátt í skokkinu.
Ein sjálfa af hópnum áður en hlaupið var af stað síðasta hringinn í bakgarðsskemmtiskokkinu.

Sigríður og Kristján rútubílsstjóri í hlaupafötum.
Ég og Kristján rútubílsstjóri, hann var sennilega elsti þátttakandi í bakgarðsskemmtiskokkinu.

Í sjómannadagsmessunni var Guðni Einarsson heiðraður en í ræðu kom fram að Guðni fór í sinn fyrsta steinbítsróður aðeins fjögurra ára en líf hans hefur helgast af sjómennsku og útgerð, hann hefur verið á fjölda báta allt frá því að vera á skaki á trillu til þess að vera á hvalveiðum. Það var ánægjulegt að vera viðstödd þessa heiðrun en ég minnist þess mjög vel þegar afi minn var heiðraður á sjómannadaginn fyrir tja… ca 40 árum síðan.

Lilja Rafney afhendir Guðna Einars heiðursorðu sjómannadagsins í Suðureyrarkirkju.
Lilja Rafney afhendir Guðna Einars heiðursorðu sjómannadagsins.

Sjómannadagshelgin endaði svo með kvöldsiglingu út Súgandafjörð en hefðin er að bátaeigendur bjóði fólki í siglingu. Ég, Dúi og Þórður fórum, ásamt fleirum, með Viktoríu þeirra Steina og Halldóru og það var ofsalega gaman, alltaf gaman að komast út á sjó og fá annað sjónarhorn á landið, takk fyrir okkur.

Sigríður við stýrið á bátnum Viktoríu.
Við stýrið á Viktoríu.

Gölturinn, fjall í norðanverðum Súgandafirði, séður frá sjó.
Gölturinn, útvörður Súgandafjarðar að norðanverðu.

Sigríður, Halldóra og Lilja á siglingu að kvöldi sjómannadags.
Ég, Halldóra og Lilja á siglingu að kvöldi sjómannadags.