COVID-19: Upplýsingafundur mánudaginn 20. apríl

Haldinn verður upplýsingafundur um stöðuna í Ísafjarðarbæ vegna Covid-19 mánudaginn 20. apríl 2020 kl. 15:00.

Fundurinn verður sendur beint út á Facebook og þar verður hægt að senda inn fyrirspurnir. Best er þó að senda spurningar inn fyrirfram því þá er hægt að undirbúa svör betur.

Dagskrá
Framsöguerindi:
Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri
Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
Súsanna Björg Ástvaldsdóttir‎, yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
Karl Ingi Vilbergsson, lögreglustjóri lögreglunnar á Vestfjörðum
Umræður og fyrirspurnir