COVID-19: Íþróttastarf barna og fullorðinna

Frá 4. maí verður samkomubann á norðanverðum Vestfjörðum rýmkað að hluta. Ákvörðun hefur þó verið tekin um að íþróttastarf barna og unglinga hefjist ekki fyrr en 11. maí og þá án takmarkana. Íþróttafélög munu senda út tilkynningar til iðkenda um fyrirkomulag æfinga.

Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar verða opin fyrir skipulagðar æfingar og keppnir fullorðinna en ekki fyrir aðra, frá og með 4. maí, fyrir utan í Sundhöll Ísafjarðar, sem opnar fyrir æfingar 7. maí þar sem enn er unnið að viðhaldi og viðgerðum.
Eftirfarandi takmarkanir gilda frá 4. maí:

  • Án áhorfenda og snertingar, gæta að tveggja metra fjarlægðamörkum
  • Takmörkun á sameiginlegum búnaði, notkun búningsklefa, sturtuklefa o.þ.h. innan dyra er óheimil
  • Innandyra max fjórir í a.m.k. 800 m² rými
  • Utandyra max sjö í hóp á 2.000 m² svæði
  • Sundæfingar max sjö í einu, mega nota búningsklefa

Ef misbrestur verður á því að þessum fyrirmælum sé fylgt verður lokað aftur.

Gert er ráð fyrir almennri opnun íþróttamannvirkja frá og með 11. maí, að sundlaugum undanskildum.

Hvað varðar líkamsrækt og sundlaugar verður vonandi hægt að opna aftur í júní ef allt gengur vel og ekki kemur bakslag í baráttunni við faraldurinn.