Dagbók bæjarstjóra 2025: Vika 49

Jólaverslunin í Krambúðinni í Neðstakaupstað.
Jólaverslunin í Krambúðinni í Neðstakaupstað.

Dagbók bæjarstjóra dagana 8. – 14. desember 2025, í 49. viku í starfi.

Vikan hófst á hefðbundnum bæjarráðsfundi. Þar var til umfjöllunar frétt sem birtist á heimasíðu innviðaráðuneytisins um síðustu mánaðarmót. Um er að ræða breytingu á byggðakerfi fiskveiðistjórnunarkerfisins í reglugerð sem tók gildi samdægurs eða á miðnætti 28. nóvember síðastliðinn. Bæjarráð lýsti alvarlegum áhyggjum sínum í bókun um málið.

Snjómokstursmál voru rædd en fyrir fundinum lá minnisblað um niðurstöður útboðs á snjómokstri fyrir Ísafjörð og Hnífsdal. Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að ganga til samninga og samþykkja rammasamning við þá bjóðendur sem buðu lægsta verð í hverjum flokki og uppfylla kröfur útboðsgagna, í samræmi við tillögur í minnisblaði frá Verkís. Frá þessu verður gengið í komandi viku á bæjarstjórnarfundi.

Vigdís Jakobs og Ingi Björn hittu mig, Gylfa, Pétur (úr menningarmálanefnd) og Bryndísi til að ræða stefnumótun Edinborgarhússins. Vigdís stýrði opnum stefnumótunarfundi síðastliðið vor í Edinborgarhúsi, hefur síðan verið að safna saman efni og upplýsingum en stefnumótuninni verður lokið innan tíðar.

Ég skrapp í kaffi til Braga sveitarstjóra í Súðavík. Ræddum þar ýmis mál sem við erum í sameiningu að fást við og sömuleiðis mál sem skarast hjá okkur. Bæjar- og sveitarstjórar á Vestfjörðum áttu góðan, mánaðarlegan, fund með Sirrý og Aðalsteini hjá Vestfjarðastofu. Bæjar- og sveitarstjórar alls landsins áttu einnig morgunfund (í fjar) í vikunni en við hittum einnig reglulega með starfsfólki Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ég fundaði einnig með stjórn húsfélagsins á Hlíf, ásamt nokkrum íbúum. Þá fundaði framkvæmdarráð Velferðarþjónustu Vestfjarða í vikunni.

Félagsheimilið í Súðavík
Í Súðavík. Heima hjá ömmu Ollu og afa Stebba hékk alltaf mynd af þessu húsi. Amma var fædd og uppalin í Súðavík og bar alla tíð mjög sterkar taugar til þorpsins. Hugsa alltaf til hennar þegar ég keyri þarna framhjá.

Við Margrét Geirs sviðsstjóri velferðarsviðs vorum með viðtalstíma í Skúrinni á Flateyri eftir hádegi á miðvikudag, það komu fáir í þetta sinn en við áttum samt sem áður gott spjall við þau sem við hittum.


Í Skúrinni á Flateyri, með Kristínu Péturs, Margréti Geirs, Ívari og Hönnu Maggý.

Það voru áhugaverðar niðurstöður úr sameiningarkosningunum Dalabyggðar og Húnaþings vestra, þær komu mér í sjálfu sér ekki á óvart. Tillaga um sameiningu var felld í báðum sveitarfélögunum með afgerandi mun. Í Dalabyggð sögðu 38,34% kjósenda „já“ og „nei“ sögðu 60,12%. Í Húnaþingi vestra sögðu 24,2% „já“ og „nei“ sögðu 73,8%. Sameiningu var því hafnað í báðum sveitarfélögum. Það er á brattan að sækja þegar farið er af stað í svona verkefni, í mörg horn að líta og ávinningur sameininga þarf að vera augljós og hagsmunir og samfélagsgerð svipuð.

Stóru tíðindi vikunnar úr mínum góða flokki eru að Svandís Svavars ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi formannssetu í hreyfingunni á næsta landsfundi, sem fram fer í mars n.k. Það verður gaman að sjá hvernig þetta þróast en ég hef trú á Vinstri grænum og býst við að kosin verði öflug forysta á landsfundinum.

Starfsfólk skrifstofu Ísafjarðarbæjar af öllum sviðum hittumst í jólamorgunkaffi á fimmtudag. Ég var með smá jólahugvekju, Axel sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs sagði frá breytingum sem verið er að vinna að á skrifstofunum á 4. hæðinni í Stjórnsýsluhúsinu. Muggi og Hjalti mættu og sungu nokkur jólalög með okkur og síðan bauð velferðarsvið upp á heitt súkkulaði og með því gæddum við okkur á smákökum. Kvöldið eftir eða á föstudagskvöldið fór starfsmannafélagið saman út að borða út í Arnardal, á Jötunn.


Morgunfundur með starfsfólki á skrifstofum Ísafjarðarbæjar.


Hjalti og Muggi í syngjandi jólasveiflu.

Í gær hittumst við nokkrar vinkonur (í kross þ.e. vinkonur og vinkonur vinkvenna), snæddum dögurð á Logni, röltum í búðir, opið hús í Netagerðinni og niðri í Neðstakaupstað á tónleika og í jólabúðina. Mér var svo boðið með hópnum í heitt súkkulaði og smákökur til Hrafnhildar og Jobba í Hnífsdal. Það er nú alveg magnað jólaland og hannyrðir frúarinnar áberandi á heimilinu, þvílík listaverk.


Dögurður á Logni, klikkaði ekki. Þarna erum við vinkonu-vinkonuhópurinn. Ég, Heiðrún, Sirrý, Anna, Sveindís og Sigga.


Það er alltaf líf og fjör á opnu húsi í Netagerðinni.

 


Heitt súkkulaði og smákökur hjá Jobba og Hrafnhildi í Hnífsdal.

Við Dúi og krakkarnir fórum svo í matarboð út í Bolungarvík til Unnar Eyrúnar og Jóns, fengum æðislegan fisk hjá þeim.

Í dag freistuðumst við Dúi til að taka rúnt yfir á Byggðasafn í heitt súkkulaði og versla smá í jólabúðinni. Það er svo kósí í Krambúðinni sem nú hýsir jólasýningu og jólabúð. Ég mæli með að fólk gefi sér tíma í jólaönnunum að kíkja þangað en það verður opið fimmtudaginn 18. desember kl. 15-18, um næstu helgi, 20.-21. desember kl. 12-17, jólabúðin verður einnig opin kl. 10-12 á Þorláksmessu. Ef fólk þyrstir sárlega í jólamuni utan þessa opnunartíma þá er alltaf hægt að finna starfsmann í Jónshúsi á morgnana og biðja um að fá að kíkja í Jólabúðina.


Úr Krambúðinni í Neðsta, þar sem jólasýningin er til húsa sem og jólabúðin.

Heitt súkkulaði í Krambúðinni.

Við kíktum í sund í einhver skipti í vikunni, það væri nú gaman að sjá fleiri nýta sér þessa dásemd sem sundlaugarnar eru, þvílík forréttindi. Svo var íslenska sundlaugamenningin að komast á lista Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna og munu heimsóknir í íslenskar sundlaugar nefnilega formlega verða skráðar á lista stofnunarinnar yfir óáþreifanlegan menningararf í þessari viku. Sundlaugarferðir, eins og þær gerast á Íslandi, teljast því til menningarlegra hefða, þær eru okkar torg, misjafnar eins og þær eru margar.

Hér heima var bakað í vikunni, síldin sett í púrtvínspækil.


Krummar, fastur liður á jólum.

Mömmukökur.

Hálfmánar, þeir verða að vera en í þetta sinn ekki með sveskjusultu.

Meðhöndlun á jólasteikinni hófst í vikunni en það er smá seremónía sem ég set hér með:

Sænsk svínasteik
Ófrosið ferskt svínalæri
50 g gróft salt á hvert kjötkíló
10-15 g púðursykur á hvert kjötkíló

Fjarlægið fremsta hækilinn af kjötinu og ekki skera í puruna.
Setjið kjötið síðan í pækil og látið það vera í honum í tíu daga.

Pækillinn er búinn til á eftirfarandi hátt:
115 g af salti í hvern lítra vatns
10-15 grömm af strásykri í hvern lítra vatns (má gjarnan vera aðeins meira magn sykurs)
Vatn svo fljóti vel yfir svínslærið.

Það er nauðsynlegt að pækillinn fljóti vel yfir kjötið sem síðan er látið liggja 10 daga í pæklinum. Á meðan er gott að geyma tunnuna með kjötinu og pæklinum í kaldri geymslu.

Að tíu dögum liðnum er kjötið tekið úr pækli og það er steikt í ofni við 75-100 C í eina klukkustund á hvert kíló.

Þegar búið er að steikja kjötið er puran tekin af því. Það er best að taka puruna af meðan kjötið er heitt. Að því búnu er penslað yfir kjötið með eggi, púðursykri og sinnepi sem hrært hefur verið saman. Gott að nota ríflega af sinnepi en það er þó smekksmál hvers og eins. Að lokum er raspi stráð yfir og kjötið brúnað í ofninum við mikinn hita í örskamma stund.

Kjötið er hægt að bera fram heitt, volgt eða kalt, allt eftir smekk hver og eins.

Borðað með því meðlæti sem maður vill. Okkur finnst gott að hafa sætkartöflumús, rauðkál, rósakál og Waldorfsalat og svo auðvitað góða sósu – við veljum helst brúnostsósu… jamm.


Svínslærið makað salti og púðursykri.