Byggingarreitur á Sindragötu 4a laus til úthlutunar

Byggingarreiturinn á Sindragötu 4a á Ísafirði er laus til úthlutunar. Í samræmi við grein 1.1. í lóðarúthlutunarreglum Ísafjarðarbæjar er 10 daga umsóknarfrestur um lóðina og berist fleiri en ein umsókn um lóðina ræður hlutkesti úthlutun.

Sindragata 4a er 2347,3 m² lóð þar sem gert er ráð tveimur íbúðarbyggingum með samtals 20-30 íbúðum samkvæmt deiliskipulagi.

Berist engin umsókn um lóðina á auglýstum úthlutunartíma færist hún á lóðalista Ísafjarðarbæjar og verður þá úthlutað til fyrsta umsækjanda sem eftir leitar, líkt og kveður á um í grein 1.3 í lóðarúthlutunarreglum.

Umsóknir skulu berast í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar.