Blábankinn fékk Landstólpann

Blábankinn á Þingeyri hlaut í gær Landstólpann, samfélagsviðurkenningu Byggðastofnunar. Verðlaunin eru veitt einstaklingi, fyrirtæki, hóp eða verkefni fyrir framtak sem hefur vakið jákvæða athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags.

Tilnefningar til Landstólpans voru 12 og bárust víðsvegar að af landinu. Í frétt á vef Byggðastofnunar, segir um Blábankann: „Blábankinn er einstaklega hvetjandi nýsköpunar- og samfélagsverkefni þar sem íbúarnir sjálfir höfðu frumkvæði af því að þróa og skipuleggja starfsemina með opinberum aðilum og þjónustuveitendum.

Blábankinn rekur öfluga ímyndarherferð sem leggur áherslu annars vegar á fjölbreytni og gildi mannlífs og náttúru Dýrafjarðar og hins vegar á möguleika og framtíð staðarins. Blábankinn er sameiningartákn og hreyfiafl í samfélaginu. Fjöldi viðburða og funda eru haldnir innan veggja hans í hverjum mánuði en bæði heima- og aðkomufólk nýta sér aðstöðuna sem vinnurými, sköpunarrými, samfélagsmiðstöð og margt fleira. Þegar Blábankinn var stofnaður haustið 2017 voru um 80 störf á Þingeyri, en ekkert þeirra dæmigert skrifstofustarf. Í dag vinna að jafnaði 3 – 6 aðilar hverju sinni innan veggja Blábankans, bæði tímabundið og til frambúðar, í skapandi greinum, stjórnsýslu og frumkvöðlastarfi. Á fyrstu 12 mánuðum starfseminnar dvöldu í Blábankanum 70 skapandi einstaklingar og unni samtals 900 vinnudaga, m.a. gegnum nýsköpunarhraðal og vinnustofur. Þessir einstaklingar taka jafnan virkan þátt í því samfélagi sem fyrir er og hefur Blábankinn því á tiltölulega skömmum tíma og með lítilli fjárfestingu haft töluverð áhrif á atvinnumynstur staðarins.

Íbúar á Þingeyri, stofnendur og starfsfólk Blábankans hafa saman unnið stórvirki og framkvæmt það sem aðrir höfðu ekki hugarflug til. Starf þeirra er öðrum innblástur og hvatning og ómetanleg fyrir samfélagið.“

Á meðfylgjandi mynd, sem fengin er af vef Byggðastofnunar, má sjá Arnhildi Lilý Karlsdóttur taka við verðlaununum fyrir hönd Blábankans. Með henni eru þau Eva Pandóra Baldursdóttir og Andri Þór Árnason, starfsfólk Byggðastofnunar.

Ísafjarðarbær óskar aðstandendum Blábankans og Þingeyringum öllum hjartanlega til hamingju með viðurkenninguna.