Blábankinn á eins árs afmæli í dag.

Í dag er liðið 1 ár frá því Blábankinn á Þingeyri var stofnaður.

Þar hafa verið haldnir 87 viðburðir með 1300 gestum. 70 einstaklingar hafa unnið í skrifstofurými í samtals 900 daga og 7 fyrirtæki eða stofnanir veita einhvers konar þjónustu í Blábankanum.

Blábankinn tekur þátt í 8 þróunar- og samfélagsverkefnum.

Við höfum fulla trú á því að Blábankinn haldi áfram af eflast og leiði til jákvæðrar þróunar á Þingeyri.

Ísafjarðarbær óskar Blábankanum til hamingju með 1 árs starfsafmælið.


Hérna má lesa nánar um árið: http://2018.blabankinn.is/