Bjarkarhlíð býður upp á þjónustu á Ísafirði

Bjarkarhlíð býður upp á þjónustu á Ísafirði 

Ráðgjafi frá Bjarkarhlíð er með mánaðarlega viðveru á Ísafirði og stendur þjónustan íbúum til boða. Næsta viðvera er 26. ágúst

Um Bjarkarhlíð

Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Markmið Bjarkarhlíðar er að veita stuðning, ráðgjöf og fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis. Þjónustan er áfallamiðuð og ætluð einstaklingum af öllum kynjum, 18 ára og eldri.


Upplýsingar um lausa tíma má nálgast:
Á heimasíðu Bjarkarhlíðar: www.bjarkarhlid.is
Í NOONA appinu
Í síma  553 3000


Á heimasíðu Bjarkarhlíðar má jafnframt finna fræðsluefni og sjálfspróf sem gætu reynst gagnleg.

Þú þarft ekki að vera viss til að bóka


Bjarkarhlíð – Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
Við hlustum. Við styðjum. Við fræðum.