Bæjarlistamaður 2022: Óskað eftir tilnefningum

Katla Vigdís Vernharðsdóttir er bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar 2021.
Katla Vigdís Vernharðsdóttir er bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar 2021.

Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar óskar eftir tilnefningum til bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar 2022.

Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir ár hvert starfandi listamanni sem búsettur er í Ísafjarðarbæ nafnbótina bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar. Nafnbótinni fylgir styrkur að upphæð 250.000 kr.

Listamenn sem hafa búið í Ísafjarðarbæ um tveggja ára skeið koma til greina sem bæjarlistamenn Ísafjarðarbæjar. Tilnefningunni skulu fylgja rök fyrir því hvers vegna viðkomandi listamaður ætti að hljóta nafnbótina.

Tekið er við tilnefningum til og með 23. september á netfangið postur@isafjordur.is.

Útnefning bæjarlistamanns fer fram á Veturnóttum sem haldnar verða 20.-23. október.

Listi yfir bæjarlistamenn Ísafjarðarbæjar árin 2000-2021