Bæjarlistamaður 2021: Óskað eftir tilnefningum

Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar óskar eftir tilnefningum til bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar 2021.

Listamenn sem hafa búið í Ísafjarðarbæ um tveggja ára skeið koma til greina sem bæjarlistamenn Ísafjarðarbæjar. Tilnefningunni skulu fylgja rök fyrir því hvers vegna viðkomandi listamaður ætti að hljóta nafnbótina.

Tekið er við tilnefningum til og með 20. ágúst á netfangið postur@isafjordur.is.