Auglýst eftir varamönnum í undirkjörstjórnir

Ísafjarðarbær auglýsir eftir varamönnum í undirkjörstjórnir allra kjördeilda sveitarfélagsins vegna sveitarstjórnarkosninganna þann 14. maí 2022. Varamenn eru kallaðir inn ef aðalmenn forfallast.

Kjördeildir eru:

1.-3. kjördeild í Menntaskólanum á Ísafirði

4. kjördeild í Grunnskólanum á Suðureyri

5. kjördeild í Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri

6. kjördeild í Grunnskólanum á Þingeyri

Eins og fram hefur komið þarf að finna nýja einstaklinga í stað þeirra kjörstjórnarmanna sem vanhæfir eru vegna tengsla við frambjóðendur, vegna strangari hæfisreglna fyrir kjörstjórnarfulltrúa með nýjum kosningalögum .

Þau sem áhugasöm eru geta haft samband við formann yfirkjörstjórnar, Díönu Jóhannsdóttur, á netfangið diana@vestfirdir.is, með upplýsingum um nafn, símanúmer og kennitölu.

Greitt er fyrir setu í kjörstjórn.