Auglýst eftir umsóknum um menningarstyrki – síðari úthlutun 2021

Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarmála, síðari úthlutun ársins 2021. Hægt er að sækja um í gegnum rafrænan Ísafjarðarbæ en einnig er hægt að fylla út umsóknareyðublað um styrk til menningarmála og senda á postur@isafjordur.is eða í bréfpósti með póstárituninni:

Ísafjarðarbær, v. menningarstyrks
Hafnarstræti 1
400 Ísafjörður

Umsóknarfrestur er t.o.m. 15. september næstkomandi.

Reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála

Bent er á að frá og með 1. janúar 2022 taka gildi nýjar reglur um úthlutun styrkja til menningarmála. Hægt er að lesa nánar um það hér.