Auglýst eftir tilnefningum um íþróttamann Ísafjarðarbæjar 2025
20.11.2025
Fréttir
Dagur Benediktsson, íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2024.
Ísafjarðarbær auglýsir eftir tilnefningum um íþróttamann ársins 2025, samkvæmt reglum um val á íþróttamanni Ísafjarðarbæjar.
Opið er fyrir tilnefningar til og með 4. desember. Allar tillögur skulu rökstuddar og tilnefndir íþróttamenn skulu keppa fyrir hönd íþróttafélags í sveitarfélaginu og hafa náð 18 ára aldri á keppnisárinu.
Tilnefningar eru sendar inn í gegnum tilnefningarform.