Auglýsing um styrk vegna námskeiðskostnaðar og/eða verkfæra- og tækjakaupa 2021

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki skv. 25. grein laga nr. 37/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Byggðasamlaginu er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.

Umsóknafrestur er til 11. desember 2021 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilisveitarfélags.

Umsóknaeyðublöð og reglur um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa eru að finna hjá viðkomandi félagsþjónustu eða inn á heimasíður BsVest bsvest.is.