Auglýsing um styrk til greiðslu fasteignagjalda félagasamtaka 2024

Ísafjarðarbær óskar eftir umsóknum um styrki til félaga- og félagasamtaka til greiðslu á fasteignagjöldum skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Félög eða félagasamtök í Ísafjarðarbæ, sem eiga húsnæði þar sem eingöngu fer fram starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar-, íþrótta-, æskulýðs-, tómstunda- og/eða mannúðarstarf, hafa heimild til að sækja um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Hámarksstyrkur til hvers félags er kr. 130.000,- á ári. Ekki er veittur styrkur til greiðslu þjónustugjalda, svo sem lóðarleigu, vatnsgjalds og sorpgjalds.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar.

Umsóknir skulu berast í síðasta lagi 28. febrúar 2024.

Reglur um styrki til félaga og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts