Asahláka á aðfangadag – íbúar beðnir að huga að niðurföllum

Veðurspáin fyrir aðfangadag gerir ráð fyrir að hlýni talsvert, með hvassri sunnanátt og rigningu. Íbúum er bent á að miðað við magnið af snjó sem kyngdi niður um helgina er skynsamlegt að hreinsa vel frá niðurföllum við hús til að koma í veg fyrir hugsanlegt vatnstjón.