Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2024: Fyrri umræða

Niðurstöður ársreiknings Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2024 sýna að rekstur sveitarfélagsins skilaði 1.168 m.kr. afgangi og skuldahlutfall lækkar um 18 prósentustig. Ársreikningurinn var ræddur og sendur til síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær, 6. maí.

„Ársreikningurinn fyrir árið 2024 staðfestir að rekstur Ísafjarðarbær gengur vel og heldur áfram að styrkjast,“ segir Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri. „Afgangur af rekstri og lækkun skuldahlutfalls endurspegla ábyrga fjármálastjórn og samstillt átak starfsfólks og bæjarstjórnar. Á síðasta ári var framkvæmt og fjárfest fyrir tæpan milljarð. Umfangsmestu fjárfestingarnar voru gatnagerð, hafnarframkvæmdir, umbætur í fráveitu og vatnsveitu og snjóflóðavörnum á Flateyri. Það er nauðsynlegt að sýna áfram aðgæslu í rekstri sveitarfélagsins en við horfum bjartsýn fram á veginn með áframhaldandi metnað fyrir þjónustu og uppbyggingu.“

Með ársreikningi er lögð fram ársskýrsla sem er ætlað að veita enn betri innsýn í rekstur og starfsemi sveitarfélagsins.

Ársreikningur, fyrri umræða

Sundurliðunarbók

Lykiltölur úr ársreikningi

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 8.235 m.kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A- og B-hluta. Rekstrartekjur A-hluta námu 6.401 m.kr.

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 1.168 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir 738 m.kr. afgangi. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 480 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi en áætlun gerði ráð fyrir 185 m.kr. afgangi.

Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 3.025 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A- og B-hluta, en eigið fé A-hluta nam 1.261 m.kr.

Skuldahlutfall í A-hluta er 114% árið 2024 en var 122% árið 2023.

Markmið fyrir árið 2024 var að hlutfallið yrði minna en 125%.

Skuldaviðmið A- og B-hluta er 95% og 72% fyrir A-hluta.

Markmið skuldaviðmiðs A-hluta fyrir árið 2024 var að það yrði minna en 90%.

Veltufé frá rekstri eykst á milli ára, sem styrkir getu sveitarfélagsins til að standa undir framkvæmdum og öðrum skuldbindingum. Hlutfall veltufjár var 20,2% af rekstrartekjum en var 14,4% á árinu 2023.

Markmið fyrir árið 2024 var að hlutfallið yrði meira en 8,5%

Handbært fé hækkaði um ríflega 100 m.kr. frá fyrra ári og var handbært fé í árslok 2024 kr. 672 m.kr.

Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða aðalsjóð, en auk hans eru eignasjóður og þjónustumiðstöð auk hlutdeildar sveitarfélagsins í samstarfsverkefnum.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B-hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Byggðasafn Vestfjarða, Eyri, Fasteignir Ísafjarðarbæjar, fráveita, Funi , hafnarsjóður, vatnsveita og þjónustuíbúðir á Hlíf auk hlutdeildar sveitarfélagsins í samstarfsverkefnum.

Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki (íbúðarhúsnæði) var 0,54% en lögbundið hámark þess er 0,625% með álagi. Í B-flokki (opinberar stofnanir) nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hámark þess og í C-flokki (atvinnustarfsemi/fyrirtæki) nam álagningarhlutfallið 1,65% sem er lögbundið hámark þess með álagi.