Ærslabelgir aftur í gang

Þessa dagana er unnið að því að vekja ærslabelgina í Ísafjarðarbæ úr vetrardvalanum.

Jörð þarf að vera orðin nokkuð þurr til að öruggt sé að ræsa loftdælurnar og eins og stundum áður lítur út fyrir að þurfi að bíða aðeins lengur eftir því að hægt verði að setja belginn í Hnífsdal í gang, sökum bleytu í jarðvegi.