Ábendingar um framúrskarandi skólaumhverfi – opið fyrir innsendingar til 31. maí

Fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar óskar eftir ábendingum um framúrskarandi skólaumhverfi í leikskólum, grunnskólum og dægradvöl Ísafjarðarbæjar skólaárið 2020-2021. Ábendingarnar mega koma úr skólasamfélaginu, frá foreldrum eða öðrum íbúum vegna verkefna eða annars sem hefur þótt áhugavert, verið hvetjandi, framúrstefnulegt og sjálfssprottið meðal starfsfólks og nemenda. Markmiðið er að vekja athygli á og veita viðurkenningu fyrir metnaðarfullt skóla- og frístundastarf.

Frestur til að senda inn ábendingar er til og með 31. maí 2021. 

Fræðslunefnd mun svo fara yfir ábendingarnar og veita þeim hugmyndum sem þykja skara fram úr viðurkenningu.

Ábendingar skulu berast með tölvupósti á postur@isafjordur.is með efnislínunni „Framúrskarandi skólaumhverfi“.