573. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjórn 2026-2030
Bæjarstjórn 2026-2030

Dagskrá

Almenn mál

1. 2026060043 - Siðareglur kjörinna fulltrúa 2026-2030

Forseti leggur fram til staðfestingar siðareglur bæjarstjórnar 2026-2030 og verða þær sendar til rafrænnar undirritunar til bæjarfulltrúa.

2. 2026050011 - Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar - breyting 2026

Forseti leggur fram til síðari umræðu og samþykktar breytingar á 8. og 48. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, í samræmi við minnisblað bæjarritara.

3. 2026040085 - Fundir bæjarstjórnar 2026-2030

Lagt fram til samþykktar minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 16. júní 2026, með tillögu um fundartíma bæjarstjórnar veturinn 2026-2027.

4. 2026060141 - Stefna og stefnuleysi í íþróttamálum

Mál sett á dagskrá að beiðni Sigurðar J. Hreinssonar, f.h. S-lista Samfylkingarinnar, varðandi stefnu og stefnuleysi Ísafjarðarbæjar í íþróttamálum, varðandi breytingar á HSV samningi sveitarfélagsins, úthlutun tíma í íþróttahúsum, reglum um úthlutun styrkja til afreksfólks og aðstöðu hestamannafélagsins Hendingar.

Tillaga málshefjanda er að málinu verði vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.

5. 2026050220 - Stjórn heilbrigðisnefndar Vestfjarða

Forseti bæjarstjórnar leggur til að Guðbjörg Þrastardóttir verði kosin formaður, Halldór Karl Valsson, aðalfulltrúi, og Hjalti Karlsson og Guðmundur Ólafsson verði varafulltrúar þeirra.

Fundargerðir til kynningar

6. 2606005F - Bæjarráð - 1370

Lögð fram til kynningar fundargerð 1370. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. júní 2026.

Fundargerðin er í 11 liðum.