569. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 569. fundar miðvikudaginn 1. apríl kl. 15. Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar á annarri hæði í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, og er öllum opinn.

Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.

Dagskrá

Almenn mál

1. Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2025 - 2025120097
Bæjarstjóri leggur fram til fyrri umræðu ársreikning Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2025.

2. Beiðni um fjölgun stöðugilda á skrifstofu velferðarsviðs - 2026030185
Tillaga frá 500. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 19. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki að fjölga stöðugildum um tvö á skrifstofu velferðarsviðs, þ.e. 100% staða verkefnastjóra og 100% staða ráðgjafa.
Bókun velferðarnefndar var eftirfarandi:
Velferðarnefnd tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð um aukið álag og breyttar forsendur í velferðarþjónustu sveitarfélagsins.
Ljóst er að umfang mála og flækjustig hefur aukist verulega á undanförnum misserum, bæði innan barnaverndar og félagsþjónustu, sem og vegna aukinna verkefna tengdum málefnum fatlaðra og móttöku flóttamanna. Fyrir liggur að fjöldi mála hefur farið fram úr fyrri áætlunum og að álag á starfsfólk er orðið verulegt.
Nefndin leggur áherslu á að þjónusta við börn og fjölskyldur, sem og aðra viðkvæma hópa, sé ávallt í samræmi við lögbundnar skyldur og fagleg viðmið. Tryggja þarf að starfsfólk hafi raunhæfan málafjölda og svigrúm til að sinna verkefnum sínum með þeim gæðum sem krafist er.
Með hliðsjón af framangreindu telur velferðarnefnd nauðsynlegt að bregðast við með því að efla mannafla á velferðarsviði og styður því ráðningu bæði verkefnastjóra í félagsþjónustu og ráðgjafa í barnavernd í 100% stöðugildi hvort.
Nefndin áréttar að í vaxandi samfélagi er mikilvægt að uppbygging þjónustu haldist í hendur við fjölgun íbúa og auknar kröfur til opinberrar þjónustu. Velferð, öryggi og hagsmunir íbúa skulu ávallt vera í forgrunni við ákvarðanatöku.

3. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - launaáætlun velferðarsviðs - 2025120020
Tillaga frá 1365. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 26. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 5 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026, vegna breytinga á launaáætlun velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000
Gestir

4. Skipulag leikskóla á Ísafirði - 2026030273
Tillaga frá 1363. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki sviðsmynd 4 samkvæmt minnisblaði sviðsstjóra, dags. 12. febrúar 2026, þ.e. að leggja niður leikskólann Tanga sem sjálfstæða leikskólaeiningu og færa starfsemina undir leikskólann Sólborg, sem deild fyrir elstu börnin.
Samhliða er lagt til við bæjarstjórn að samþykkja að færanlegar einingar verði keyptar og staðsettar við Sólborg og Eyrarskjól, til að rúma fjölgun á leikskólabörnum þar frá hausti 2026, og þar til varanleg lausn fæst í húsnæðismálum leikskóla.

5. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 6 - launaáætlun og færanleg kennslurými - 2025120020
Tillaga frá 1365. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 26. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 6 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna breytinga á launaáætlun og kaupa á færanlegum kennslurýmum.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000

6. Gjaldskrár 2026 - 2025050026
Tillaga frá 167. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 25. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki textaútgáfu af gjaldskrár Ísafjarðarbæjar fyrir vatnsgjald, notkunargjald, mælaleigu og heimæðargjald í Ísafjarðarbæ, vegna ársins 2026.

7. Kosningar til sveitarstjórnar 2026 - 2026030237
Tillaga forseta um að bæjarstjórn samþykki að kjörstaðir verði eftirfarandi í kosningum til sveitarstjórnar 16. maí 2026:

Í Skutulsfirði: Í Grunnskólanum á Ísafirði, þar verði þrjár kjördeildir.
Í Súgandfirði: Í Grunnskólanum á Suðureyri, þar verði ein kjördeild.
Í Önundarfirði: Í Grunnskóla Önundarfjarðar, þar verði ein kjördeild.
Í Dýrafirði: Í Grunnskólanum á Þingeyri, þar verði ein kjördeild.

8. Samþykkt um búfjárhald - 2025 - 2025070010
Tillaga frá 160. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 18. september 2025, og frá 1357. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 29. janúar 2026, um að bæjarstjórn samþykki nýja samþykkt um búfjárhald.

9. Stjórn Lýðskólans á Flateyri 2026 - 2026030177
Tillaga frá 1364. fundi bæjarráðs, um að bæjarstjórn samþykki að skipa Nanný Örnu Guðmundsdóttur í stjórn Lýðskólans á Flateyri.
Fundargerðir til kynningar

Fundargerðir til kynningar

10. Bæjarráð - 1364 - 2603011F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1364. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 19. mars 2026.
Fundargerðin er í 6 liðum.

11. Bæjarráð - 1365 - 2603018F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1365. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 23. mars 2026.
Fundargerðin er í 9 liðum.

12. Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 4 - 2603006F
Lögð fram til kynningar 4. fundargerð fundar nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 11. mars 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.

13. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 167 - 2603016F
Lögð fram til kynningar fundargerð 167. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 25. mars 2026.
Fundargerðin er í 5 liðum.

14. Velferðarnefnd - 499 - 2602013F
Lögð fram til kynningar fundargerð 99. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 12. mars 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.

15. Velferðarnefnd - 500 - 2603012F
Lögð fram til kynningar fundargerð 500. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 19. mars 2026.
Fundargerðin er í 5 liðum.