568. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 568. fundar fimmtudaginn 19. mars kl. 17. Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar á annarri hæði í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, og er öllum opinn.
Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.
Dagskrá
Almenn mál
1. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 4 - ólympíufarar - 2025120020
Tillaga frá 1362. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 4 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna styrkveitinga til tveggja Ólympíuleikafara.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000.
2. Farsældarráð Vestfjarða - 2025090182
Tillaga frá 1362. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki að Fjölnir Ásbjörnsson verði tilnefndur fulltrúi foreldra í farsældarráði og að Sigríður Júlía Brynleifsdóttir veði varafulltrúi í stjórn farsældarráðs.
3. Þjónustusamningur Björgunarsveitin Björg - 2025110114
Tillaga frá 1363. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. mars 2026, um að um bæjarstjórn samþykki þjónustusamning við Björgunarsveitina Björgu á Suðureyri fyrir árin 2026-2030.
Fundargerðir til kynningar
4. Bæjarráð - 1362 - 2603004F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1362. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. mars 2026.
Fundargerðin er í 9 liðum.
5. Bæjarráð - 1363 - 2603007F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1363. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. mars 2026.
Fundargerðin er í 14 liðum.
6. Hafnarstjórn - 268 - 2603001F
Lögð fram til kynningar fundargerð 268. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 6. mars 2026.
Fundargerðin er í 10 liðum.
7. Menningarmálanefnd - 179 - 2602024F
Lögð fram til kynningar fundargerð 179. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 5. mars 2026.
Fundargerðin er í 4 liðum.
8. Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 4 - 2603006F
Lögð fram til kynningar fundargerð 468. fundar nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 11. mars 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.
9. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 668 - 2602017F
Lögð fram til kynningar fundargerð 668. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 5. mars 2026.
Fundargerðin er í 18 liðum.