566. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 566. fundar fimmtudaginn 19. febrúar kl. 17. Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar á annarri hæði í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, og er öllum opinn.

Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.

Dagskrá

Almenn mál

1. Breiðadalslína 1 um Dýrafjarðargöng. Ósk um aðalskipulagsbreytingu - 2026020060

Tillaga frá 667. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. febrúar 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila auglýsingu skipulagslýsingar Breiðadalslínu 1 um Dýrafjarðargöng vegna breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2010-2020, skv. 30. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fundargerðir til kynningar

2. Bæjarráð - 1358 - 2602001F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1358. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 8 liðum.

3. Bæjarráð - 1359 - 2602011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1359. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 12 liðum.

4. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 667 - 2602002F

Lögð fram til kynningar fundargerð 667. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 14 liðum.

5. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 38 - 2602009F

Lögð fram til kynningar fundargerð 38. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 11. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 2 liðum.

6. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 165 - 2602007F

Lögð fram til kynningar fundargerð 165. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 11. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 8 liðum.