557. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjórn kemur saman til 557. fundar fimmtudaginn 18. september kl. 17.

Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og er öllum opinn. Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.

Dagskrá

Almenn mál

1. Notendaráð fatlaðra á Vestfjörðum 2025 - 2025010306
Tillaga frá 1338. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 8. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki að kjósa Nanný Örnu Guðmundsdóttur sem aðalfulltrúa, og Jóhann Birki Helgason sem varafulltrúa þjónustusvæðis Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks innan Velferðarþjónustu Vestfjarða.

2. Álfadalur, Ingjaldssandi. Lóðastofnun - 2025080113
Tillaga frá 658. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 11. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki að heimila stofnun lóða úr jörðinni Álfadal á Ingjaldssandi í samræmi við merkjalýsingu dagsett 25. ágúst 2025.

3. Miðtún 31-37 (Seljalandsvegur 79) - umsókn um byggingarheimild - 2021050032
Tillaga frá 658. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 11. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki að heimila lóðarmarkabreytingar og lóðarleigusamning, í samræmi við mæliblað tæknideildar, dags. 30. desember 2024.

4. Daltunga 2, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2025090036
Tillaga frá 658. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 11. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki að Magnús Jónsson fái lóðina við Daltungu 2 á Ísafirði, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða.

5. Brekkugata 34 og 36, Þingeyri. Breytt lóðarmörk - 2025060112
Tillaga frá 658. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 11. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki lóðarleigusamning fasteigna við Brekkugötu 34 og Brekkugötu 36, á Þingeyri.

6. Sindragata 5, Ísafirði. Umsókn um lóðarleigusamning - 2025080145
Tillaga frá 658. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 11. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki lóðarleigusamning fasteignar við Sindragötu 5, í samræmi við mæliblað tæknideildar dags. 3. september 2025.

7. Sindragata 7, Ísafirði. Umsókn um lóðarleigusamning - 2025080146
Tillaga frá 658. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 11. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki lóðarleigusamning fasteignar við Sindragötu 7, í samræmi við mæliblað tæknideildar dags. 3. september 2025.

8. Aðalstræti 25, Ísafirði. Umsókn um lóðarleigusamning - 2025080052
Tillaga frá 658. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 11. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki lóðarleigusamning við Aðalstræti 25 á Ísafirði, í samræmi við mæliblað tæknideildar.

9. Aðalgata 38, Suðureyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2025080107
Tillaga frá 658. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 11. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki lóðarleigusamning við Aðalgötu 38 á Suðureyri, í samræmi við mæliblað tæknideildar dags. 3. september 2025.

10. Hrannargata 2, Flateyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2025090041
Tillaga frá 658. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 11. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki lóðarleigusamning við Hrannargötu 2 á Flateyri, í samræmi við mæliblað tæknideildar.

11. Sérstakur húsnæðisstuðningur - yfirfara tekjuviðmið fyrir árið 2026. - 2025080091
Tillaga frá 492. fundi velferðarnefndar, sem haldinn var 9. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki að tekjuviðmið sérstaks húsnæðisstuðnings hækki um 75 %. Einnig leggur velferðarnefnd til að hámarksstuðningur hækki samhliða. Fullur bótaréttur geti að hámarki orðið kr 105.000,- á mánuði. Samanlagðar eignir umsækjenda og annarra heimilismanna nemi ekki hærri fjárhæð en kr. 7.477.666.-

12. Vesturafl-Fjölsmiðja - Samningur - 2025070094
Tillaga frá 491. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 21. ágúst 2025, um að bæjarstjórn samþykki nýjan samning við Vesturafl/Fjölsmiðju, en samningurinn felur í sér samstarf um þjónustu við einstaklinga í formi starfsþjálfunar og félagslegrar virkni.

Fundargerðir til kynningar

13. Bæjarráð - 1338 - 2509006F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1338. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 8. september 2025.
Fundargerðin er í 5 liðum.

14. Bæjarráð - 1339 - 2509011F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1339. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 15. september 2025.
Fundargerðin er í 8 liðum.

15. Menningarmálanefnd - 177 - 2509007F
Lögð fram til kynningar fundargerð 177. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 15. september 2025.
Fundargerðin er í 9 liðum.

16. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 658 - 2509005F
Lögð fram til kynningar fundargerð 658. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 11. september 2025.
Fundargerðin er í 20 liðum.

17. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 29 - 2509001F
Lögð fram til kynningar fundargerð 29. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 3. september 2025.
Fundargerðin er í 9 liðum.

18. Velferðarnefnd - 491 - 2507016F
Lögð fram til kynningar fundargerð 491. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 21. ágúst 2025.
Fundargerðin er í 13 liðum.

19. Velferðarnefnd - 492 - 2509004F
Lögð fram til kynningar fundargerð 492. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 9. september 2025.
Fundargerðin er í 4 liðum.