555. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
Bæjarstjórn kemur saman til 555. fundar fimmtudaginn 19. júní kl. 17.
Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og er öllum opinn. Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar
Dagskrá
Almenn mál
1. Nefndarmenn 2022-2026 - 2022050135
Tillaga forseta um að Hlynur Reynisson verði aðalfulltrúi Í-lista í velferðarnefnd, í stað Kristínar Bjarkar Jóhannsdóttur fulltrúa Í-lista. Þá verði Halldóra Björk Norðdahl varamaður Í-lista í nefndinni stað Hlyns Reynissonar.
2. Svæðisráð um strandsvæðaskipulag Vestfjarða - 2025060074
Tillaga frá 1329. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 16. júní 2025, um að bæjarstjórn samþykki að tilnefna Jóhann Birki Helgason sem aðalfulltrúa í svæðisráð um strandssvæðaskipulag fyrir Vestfirði.
3. Deiliskipulag á Torfnesi - menntastofnanir og dæluhús - 2025030193
Tillaga frá 653. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. júní 2025, um að bæjarstjórn samþykki að heimila málsmeðferð í samræmi við 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4. Freyjugata 1, Suðureyri. Umsókn um íbúðarhúsalóð - 2025050015
Tillaga frá 653. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. júní 2025, um að bæjarstjórn samþykki að Annas Jón Sigmundsson fái lóðina við Freyjugötu 1 á Suðureyri skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða.
5. Kaplaskjól 5, Engidal. Umsókn um lóð undir hesthús - 2025060020
Tillaga frá 653. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. júní 2025, um að bæjarstjórn samþykki Ólafía Þorsteinsdóttir fái lóðina við Kaplaskjól 5, Skutulsfirði skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða.
6. Sindragata 2 á Ísafirði. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2025060005
Tillaga frá 653. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. júní 2025, um að bæjarstjórn samþykki endurnýjun lóðarleigusamnings við Sindragötu 2 á Ísafirði.
7. Útsýnispallur við Brimnesveg, Flateyri. - 2016080025
Tillaga frá 653. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. júní 2025, um að bæjarstjórn samþykki breytingu í samræmi við 3. málsgrein 44. gr. skipulagslaga. Nefndin telur að með breytingu á gögnum þá hafi verið komið til móts við innsendar athugasemdir á grenndarkynningartímabili, en þó þannig að aðgengi verði frá gangstétt sem liggur að sundlaug.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila útgáfu framkvæmdaleyfis í samræmi við breytt gögn.
Fundargerðir til kynningar
8. Bæjarráð - 1329 - 2506015F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1329. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 16. júní 2025.
Fundargerðin er í 12 liðum.
9. Menningarmálanefnd - 176 - 2506008F
Lögð fram til kynningar fundargerð 176. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 5. júní 2025.
Fundargerðin er í 8 liðum.
10. Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði - 2 - 2505029F
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 30. maí 2025.
Fundargerðin er í 2 liðum.
11. Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði - 3 - 2506012F
Lögð fram til kynningar fundargerð 3. fundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 5. júní 2025.
Fundargerðin er í 1 lið.
12. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 653 - 2506005F
Lögð fram til kynningar fundargerð 653. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur varh haldinn 12. júní 2025.
Fundargerðin er í 15 liðum.
13. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 24 - 2506001F
Lögð fram til kynningar fundargerð 24. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 4. júní 2025.
Fundargerðin er í 5 liðum.
14. Velferðarnefnd - 490 - 2505022F
Lögð fram til kynningar fundargerð 490. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 4. júní 2025.
Fundargerðin er í 1 lið.