530. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 530. fundar fimmtudaginn 21. mars kl. 17.

Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og er öllum opinn. Beint streymi af fundinum er í spilaranum neðst á þessari síðu eða á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.

Dagskrá

Almenn mál

1. Trúnaðarmál - 2024020129
Trúnaðarmál lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

2. Beiðni um niðurfellingu gatnagerðargjalda - Daltunga 4 - 2024030039
Tillaga frá 1276. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. mars 2024, um að bæjarstjórn samþykki niðurfellingu gatnagerðargjalda vegna lóðar við Daltungu 4 á Ísafirði, að fjárhæð kr. 6.130.575.

3. Hrauntunga 1-3 - ósk um niðurfellingu gatnagerðargjalda - 2024030036
Tillaga frá 1276. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. mars 2024, um að bæjarstjórn samþykki niðurfellingu gatnagerðargjalda vegna lóðar við Hrauntungu 1-3 á Ísafirði, að fjárhæð kr. 9.374.725.

4. Málstefna Ísafjarðarbæjar - 2023090020
Tillaga frá 1277 fundi bæjarráðs, sem haldinn var 18. mars 2024, um að bæjarstjórn samþykki Málstefnu Ísafjarðarbæjar.

5. Hóll í Firði, Önundarfirði. Nýtt deiliskipulag á F37 -Stekkjarlæksbakkar - 2022050043
Tillaga frá 627. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 14. mars 2024, um að bæjarstjórn samþykki breytingu á uppdrætti sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin hefur farið yfir athugasemdir Skipulagsstofnunar sem settar voru fram í erindisbréfi dags. 15. desember 2022.
Brugðist hefur verið við athugasemdum stofnunarinnar og nefndin telur að breytingar m.t.t. athugasemda séu ekki þess eðlis að auglýsa þurfi að nýju, með vísan til 4. mgr. 41. gr. laganna.

6. Bræðratunga, raðhús - 2023010245
Tillaga frá 627. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 14. mars 2024, um að bæjarstjórn samþykki að afturkalla lóðarúthlutun Landsbyggðarhúsa ehf. við Bræðratungu 2-12 (áður 2-10) í Tunguhverfi á Ísafirði, sem úthlutað var 23. febrúar 2023.

7. Uppbyggingasamningar 2024 - 2023100122
Tillaga frá 2. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 14. mars 2023, um að bæjarstjórn samþykki að gerðir verði uppbyggingarsamningar við eftirfarandi félög. Heildarupphæð úthlutunar er 12.000.000. Nefndin leggur til að upphæðin skiptist eftirfarandi:
Klifurfélag Vestfjarða kr. 1.160.000
Golfklúbbur Ísafjarðar kr. 5.830.000
Skíðafélag Ísfirðinga kr. 2.800.000 fyrir snjógirðingum.
Knattspyrnudeild Vestra kr. 2.210.000 til að standsetja gestaklefa (klefa meistaraflokks kvenna) eins og tilgreint er í umsókn.
Verkefnin sem sótt var um í uppbyggingarsjóð eru mörg hver góð og hvetur nefndin umsækjendur sem ekki fengu styrk að sækja um aftur að ári. Nefndin leggur áherslu á að verkefni fá fullan styrk svo líklegra sé að þau verði framkvæmd á árinu.
Nefndin leggur jafnframt til við bæjarstjórn að upphæð uppbyggingarsamninga verði hækkuð á næsta ári en hún hefur haldist óbreytt í mörg ár. Það er kominn tími til að endurskoða upphæðina sem og að vísitölutengja hana.

8. Velferðarþjónusta Vestfjarða - endurskoðun reglna og verklags - 2023100093
Tillaga frá 478. fundi velferðarnefndar, sem haldinn var 14. mars 2024, um að bæjarstjórn samþykki reglur um stuðningsþjónustu.

9. Mótttaka flóttamanna 2024 - 2024010067
Tillaga frá 477. fundi velferðarnefndar, sem haldinn var 29. febrúar 2024, um að bæjarstjórn samþykki framlengingu samnings um móttöku flóttafólks til 30. júní 2024 og að 40 notendur verði veitt þjónusta í Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhreppi.

10. Velferðarþjónusta Vestfjarða - endurskoðun reglna og verklags - bakvaktir barnaverndar - 2023100093
Tillaga Örnu Láru Jónsdóttur, bæjarstjóra, vegna tillögu framkvæmdaráðs Velferðarþjónustu Vestfjarða, um að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi um sameiginlegar bakvaktir í barnavernd:
Að bakvaktir í barnavernd verði sameiginlegar fyrir félagsþjónustusvæðin. Ákvæði um auka orlofsdaga verði fellt út úr viðaukasamningi en í stað þess verði bakvaktartímum á viku fjölgað sem nemur grunnlaunakostnaði, án launatengdra gjalda. Í áætlun um kostnað verði gert ráð fyrir launatengdum gjöldum. Tímafjöldi fyrir bakvakt í eina viku færi úr 15 í 17,5.

Fundargerðir til kynningar

11. Bæjarráð - 1276 - 2403006F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1276. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. mars 2024.
Fundargerðin er í níu liðum.

12. Bæjarráð - 1277 - 2403016F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1277. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. mars 2024.
Fundargerðin er í 14 liðum.

13. Menningarmálanefnd - 171 - 2403002F
Lögð fram til kynningar fundargerð 171. fundar menningarmálalnefndar, en fundur var haldinn 7. mars 2024.
Fundargerðin er í sex liðum.

14. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 627 - 2402032F
Lögð fram til kynningar fundargerð 627. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 14. mars 2024.
Fundargerðin er í 13 liðum.

15. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 2 - 2403007F
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 14. mars 2024.
Fundargerðin er í fjórum liðum.

16. Starfshópur um málefni leikskóla - 3 - 2403003F
Lögð fram til kynningar fundargerð 3. fundar starfshóps um málefni leikskóla, en fundur var haldinn 6. mars 2024.
Fundargerðin er í einum lið.

17. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 144 - 2403008F
Lögð fram til kynningar fundargerð 144. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 12. mars 2024.
Fundargerðin er í einum lið.

18. Velferðarnefnd - 478 - 2403010F
Lögð fram til kynningar fundargerð 478. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 14. mars 2024.
Fundargerðin er í átta liðum.

19. Velferðarnefnd - 477 - 2402026F
Lögð fram til kynningar fundargerð 477. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 29. febrúar 2024.
Fundargerðin er í sjö liðum.

20. Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða - 2 - 2403014F
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar framkvæmdaráðs Velferðarþjónustu Vestfjarða, en fundur var haldinn 19. mars 2024.
Fundargerðin er í fimm liðum.

21. Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða - 1 - 2311012F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar framkvæmdaráðs Velferðarþjónustu Vestfjarða, en fundur var haldinn 19. mars 2024.
Fundargerðin er í einum lið.