519. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 519. fundar þriðjudaginn 19. september.

Fundurinn er haldinn í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og er öllum opinn. Einnig er hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum neðst á þessari síðu og á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.

Dagskrá

Almenn mál

1. Velferðarþjónusta Vestfjarða - 2022100128
Forseti bæjarstjórnar leggur fram til síðari umræðu viðauka I við samning um sérhæfða velferðarþjónustu Vestfjarða, um að Strandabyggð verði aðili að samningi um Velferðarþjónustu á Vestfjörðum.
Forseti leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka I við samninginn.

2.  Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu - 2022120121
Forseti bæjarstjórnar leggur fram til síðari umræðu breytingu á- 37. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, auk viðauka 1, um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Ísafjarðarbæjar samkvæmt 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 70/2002, og viðauka 2, um fullnaðarafgreiðslu mála vegna þjónustu við fatlað fólk.
Forseti leggur til við bæjarstjórn að samþykkja umrædda breytingu á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og viðauka 1 og 2 við samþykktina.

3.  Nefndarmenn 2022-2026 - íþrótta- og tómstundanefnd - 2022050135
Tillaga Jóhanns Birkis Helgasonar, oddvita D-lista Sjálfstæðisflokks, um að Eyþór Bjarnason verði kosin aðalmaður D-lista í íþrótta- og tómstundanefnd, í stað Þorleifs H. Ingólfssonar.

4.  Umferðaröryggi á Suðureyri - 2023060041
Tillaga frá 1254. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 11. september 2023, um að bæjarstjórn að samþykkja að gera hluta Túngötu og veg við kirkju á Suðureyri að vistgötu, þ.e. Túngötu frá horni Sægötu/Túngötu að húsi við Túngötu 6, auk akvegar framhjá kirkju, þ.e. vegstubbur frá Súgandafjarðarvegi að Túngötu.
Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja að banna innakstur austur Túngötu, austan megin við hús nr. 6, á þann hátt að hringakstur myndist við Grunnskólann þegar ekið er frá Súgandafjarðarvegi, inn á vegstubb hjá bifreiðastæðum við Suðureyrarkirkju. Við skólann yrði beygt til hægri vestur Túngötu (nýja vistgötu) og fram hjá skóla, þar sem svokölluð sleppistæði eru fyrir framan skólalóð, og áfram Túngötu að gatnamótum við Súgandafjarðarveg.

5.  Deiliskipulag Suðurtangi - Breyting 2023 - 2023040059
Tillaga frá 615. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 14. september 2023, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð í samræmi við 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, varðandi deiliskipulag á Suðurtanga.

6.  Brekkugata 2, Þingeyri. Umsókn um endurnýjun lóðarleigusamning. - 2023080052
Tillaga frá 615. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 14. september 2023, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Brekkugötu 2 á Þingeyri, í samræmi við gildandi skipulag, en nefndin bendir jafnframt á að lóðin er skv. gildandi skipulagi 617 m2, í stað 570 m2, eins og skráð var skv. eldri lóðarleigusamning.
Önnur atriði sem snúa að gestahúsi eru í umsókn til byggingarfulltrúa.

7.  Stefnisgata 8 á Suðureyri. Umsókn um lóð - 2023080097
Tillaga frá 615. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 14. september 2023, um að bæjarstjórn samþykki að Útgerðarfélagið Vonin ehf. fái lóð við Stefnisgötu 8, Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun. Nefndin bendir umsækjanda á að á svæðinu er hverfisvernd í gildi og skulu mannvirki sem byggð verða taka mið af þeim kvöðum.
Tillaga nefndarinnar snýr jafnframt að því að bæjarstjórn heimili málsaðilabreytingu á deiliskipulagi Suðureyrarmala, í samræmi við umsókn.

8.  Stefnisgata 10 á Suðureyri. Umsókn um lóð - 23080098
Tillaga frá 615. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 14. september 2023, um að bæjarstjórn samþykki að Útgerðarfélagið Vonin ehf. fái lóð við Stefnisgötu 10, Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun. Nefndin bendir umsækjanda á að á svæðinu er hverfisvernd í gildi og skulu mannvirki sem byggð verða taka mið af þeim kvöðum.
Tillaga nefndarinnar snýr jafnframt að því að bæjarstjórn heimili málsaðilabreytingu á deiliskipulagi Suðureyrarmala, í samræmi við umsókn.

9.  Beiðni um endurnýjun á samningi um kaup Ísafjarðarbæjar á tímum í reiðhöll Knapaskjóls á Söndum í Dýrafirði - 2018050047
Tillaga bæjarráðs frá 1254. fundi þann 11. september 2023, um að bæjarstjórn samþykki endurnýjun samnings um kaup Ísafjarðarbæjar á tímum í reiðhöll Knapaskjóls á Söndum í Dýrafirði.

Fundargerðir til kynningar

10.  Bæjarráð - 1254 - 2309008F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1254. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. september 2023.
Fundargerðin er í 13 liðum.

11.  Fræðslunefnd - 456 - 2309004F
Lögð fram til kynningar fundargerð 456. fundar fræðslunefndar, en fundur var haldinn 14. ágúst 2023.
Fundargerðin er í fimm liðum.

12.  Hafnarstjórn - 243 - 2309009F
Fundargerð 243. fundar hafnarstjórnar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 13. september 2023.
Fundargerðin er í fjórum liðum.

13. Íþrótta- og tómstundanefnd - 243 - 2308011F
Lögð fram til kynningar fundargerð 234. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 6. september 2023.
Fundargerðin er í þremur liðum.

14.  Skipulags- og mannvirkjanefnd - 615 - 2309011F
Fundargerð 615. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 14. september 2023.
Fundargerðin er í níu liðum.

15.  Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 136 - 2309010F
Lögð fram til kynningar fundargerð 136. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 13. september 2023.
Fundargerðin er í fimm liðum.

16.  Velferðarnefnd - 472 - 2309005F
Lögð fram til kynningar fundargerð 472. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 14. september 2023.
Fundargerðin er í fimm liðum.