491. fundur bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 491. fundar síns fimmtudaginn 3. mars kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar, Stjórnsýsluhúsinu.

Beint streymi af fundi má finna hér á síðunni fyrir neðan fundardagskrá.

Dagskrá

Almenn mál

1. Nefndarmenn 2018-2022 - íþrótta- og tómstundanefnd. - 2018050091
Tillaga bæjarfulltrúa Í-lista um að Birta Dögg Álfhildardóttir verði kosin varamaður Í-lista í íþrótta-og tómstundanefnd, í stað Svölu Sigríðar Jónsdóttur.

2. Aldrei fór ég suður - ýmis málefni hátíðarinnar - 2018090087
Tillaga frá 1189. fundi bæjarráðs, sem fram fór 28. febrúar 2022, um bæjarstjórn samþykki stuðsamning Ísafjarðarbæjar við Aldrei fór ég suður fyrir árin 2022-2024.

3. Hjúkrunarheimilið Eyri - viðbygging - 2020 - 2020040005
Tillaga frá 1189. fundi bæjarráðs, sem fram fór 28. febrúar 2022, um bæjarstjórn samþykki drög að samstarfssamningi heilbrigðisráðuneytisins og Ísafjarðarbæjar um stækkun hjúkrunarheimilisins Eyrar.

4. Fjarðarstræti 20. Umsókn um breytingu á deiliskipulagi Eyrarinnar - 2022020084
Tillaga frá 578. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. febrúar 2022, um bæjarstjórn heimili óverulega breytingu á deiliskipulagi Eyrarinnar vegna lóðarinnar Fjarðarstræti 20, skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga 123/2010.

5. Ósk um breytingu á aðalskipulagi vegna færslu á Bolungarvíkurlínu 1 - 2021120010
Tillaga frá 578. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. febrúar 2022, um bæjarstjórn heimili málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6. Daltunga 6, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2022010150
Tillaga frá 578. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. febrúar 2022, um bæjarstjórn samþykki að Ásmundur Ragnar Sveinsson fái lóðina við Daltungu 6, Ísafirði skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

Fundargerðir til kynningar

7. Bæjarráð - 1188 - 2202016F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1188. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 21. febrúar 2022.
Fundargerðin er í fimm liðum.

8. Bæjarráð - 1189 - 2202020F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1189. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 28. febrúar 2022.
Fundargerðin er í 19 liðum.

9. Hafnarstjórn - 229 - 2202018F
Lögð fram til kynningar fundargerð 229. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 23. febrúar 2022.
Fundargerðin er í þremur liðum.

10. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 578 - 2202009F
Lögð fram til kynningar fundargerð 578. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 23. febrúar 2022.
Fundargerðin er í þrettán liðum.

11. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 118 - 2202005F
Lögð fram til kynningar fundargerð 118. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar , en fundur var haldinn 22. febrúar 2022.
Fundargerðin er í fjórum liðum.

12. Velferðarnefnd - 462 - 2201010F
Lögð fram til kynningar fundargerð 462. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 17. febrúar 2022.
Fundargerðin er í fimm liðum.


Beint streymi