489. fundur bæjarstjórnar

489. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, fimmtudaginn 3. febrúar og hefst kl. 17.

Beina hljóðútsendingu af fundinum má finna hér

Dagskrá

Almenn mál

1. Stjórnkerfisbreytingar Ísafjarðarbæjar - 2021070020
Tillaga frá 1184. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 24. janúar 2022, um að vísa skýrslu um stjórnkerfisbreytingar í Ísafjarðarbæ til bæjarstjórnar til umræðu.
Þá er lagt til við bæjarstjórn að samþykkja að aðgerðir 1-7 í skýrslu RR ráðgjafar verði innleiddar hjá sveitarfélaginu, en þær eru 1) vinna skipulega að því að viðhorf og stjórnmálamenning einkennist af samvinnu og samstöðu 2) þjálfun og fræðsla fyrir fulltrúa í hverfisráðum 3) fulltrúum verði greidd þóknun fyrir störf sín 4) fundargerðir hverfisráða verði færðar inn í málaskrá Ísafjarðarbæjar 5) hvert hverfisráð hafi skilgreinda fundaraðstöðu 6) íbúar fái betri upplýsingar um hlutverk og heimildir hverfisráða.
Að lokum leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja að stofnuð verði nefnd um stjórnkerfisbreytingar í Ísafjarðarbæ með aðkomu fulltrúa hverfisráða og bæjarstjórnar sem vinni áfram að tillögum um framtíðarskipulag hverfisráða í stjórnkerfi Ísafjarðarbæjar.

2. Samningur um orkukaup vegna sundlaugar á Þingeyri - 2022010100
Tillaga frá 1185. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 31. janúar 2022, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 2 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2022, vegna raforkukaupa fyrir sundlaugina á Þingeyri, að fjárhæð kr. 3.000.000, en áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er lækkun afgangs sem því nemur.

3. Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar 2022 - 2022010049
Tillaga frá 1185. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 31. janúar 2022, um að bæjarstjórn samþykki tillögur sviðsstjóra um breytingar á 5. gr., 12. gr., 14. gr., 15., 16. gr., 35. gr., 39. gr., 40. gr., 48. gr., 51. gr., 52. gr. og 62. gr., sbr. minnisblöð dags. 27. janúar 2022.

4. Ártunga 6, Ísafirði. Umsókn um lóð undir einbýlishús - 2021120089
Tillaga frá 574. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 19. janúar 2022, um að bæjarstjórn samþykki að Kristján Rafn Guðmundsson og Íris Rut Jóhannesdóttir fái lóðina við Ártungu 6, Ísafirði skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

5. Brekkugata 22, Þingeyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2021120090
Tillaga frá 574. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 19. janúar 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Brekkugötu 22, Þingeyri.

6. Góustaðir við Sunnuholt - Fyrirspurn um byggingarleyfi - 2019100003
Tillaga frá 574. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 19. janúar 2022, um að bæjarstjórn heimili stofnun lóðar út úr landi Góustaða í samræmi við umsókn.

7. Hafnarstræti 1 á Þingeyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2021120082
Tillaga frá 574. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 19. janúar 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Hafnarstræti 1, Þingeyri.

8. Hjallavegur 17 á Suðureyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2021110045
Tillaga frá 574. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 19. janúar 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Hjallaveg 17, Suðureyri.

9. Skólagata 8 á Suðureyri. Umsókn um breytingu á deiliskipulagi - 2021120065
Tillaga frá 574. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 19. janúar 2022, um að bæjarstjórn heimili breytingu á deiliskipulagi skv. II. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.

Fundargerðir til kynningar

10. Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 190 - 2201006F
Lögð fram til kynningar fundargerð 190. fundar barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum, en fundur var haldinn 19. janúar 2022.
Fundargerðin er í einum lið.

11. Bæjarráð - 1184 - 2201016F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1184. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 24. janúar 2022.
Fundargerðin er í níu liðum.

12. Bæjarráð - 1185 - 2201023F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1185. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 31. janúar 2022.
Fundargerðin er í 21 lið.

13. Fræðslunefnd - 435 - 2201017F
Lögð fram til kynningar fundargerð 435. fundar fræðslunefndar, en fundur var haldinn 27. janúar 2022.
Fundargerðin er í sex liðum.

14. Hafnarstjórn - 228 - 2201011F
Lögð fram til kynningar fundargerð 228. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 18. janúar 2022.
Fundargerðin er í þremur liðum.

15. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 574 - 2112018F
Lögð fram til kynningar fundargerð 574. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 19. janúar 2022.
Fundargerðin er í 15 liðum.

16. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 575 - 2201015F
Lögð fram til kynningar fundargerð 575. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 26. janúar 2022.
Fundargerðin er í einum lið.

17. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 116 - 2201007F
Lögð fram til kynningar fundargerð 116. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 25. janúar 2022.
Fundargerðin er í einum lið.