441. fundur bæjarstjórnar

 441. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, 19. september 2019 og hefst kl. 17:00

Dagskrá: 

Almenn mál

1.

Túngata 1, 400. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2019090038

 

Tillaga 525. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 11. sept. sl., um að heimila endurnýjun lóðarleigusamnings vegna fasteignar að Túngötu 1, Ísafirði.

     

2.

Umsókn um lóðarleigusamning. Túngata 4, 430 - 2019080008

 

Tillaga 525. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 11.sept. sl., um að heimila endurnýjun lóðarleigusamnings vegna fasteignar að Túngötu 4, Suðureyri

     

3.

Túngata 7, umsókn um nýjan lóðarleigusamning - 2019090032

 

Tillaga 525. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 11.sept sl., um að heimila endurnýjun lóðarleigusamnings vegna fasteignar að Túngötu 7, Ísafirði.

     

4.

Túngata 9, umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2019090033

 

Tillaga 525. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 11.sept sl., um að heimila endurnýjun lóðarleigusamnings vegna fasteignar að Túngötu 9, Ísafirði.

     

5.

Öldugata 2 - umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2019090045

 

Tillaga 525. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 11. september sl., um að heimila endurnýjun lóðaleigusamnings Öldugötu 2, að viðbættri kvöð um að lóðarhafar við Eyrargötu 1, hafi aðgengi til viðhalds að þeirri hlið skúrs sem snýr að Öldugötu 2

     

6.

Byggingarleyfisumsókn fyrir viðbyggingu að Hjarðardal Ytri 1 F212-6068 - 2019090012

 

Tillaga 525. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 11.sept sl., um að heimila stofnun lóðar undir íbúðarhús í landi Ytri Hjarðardals 1.

     

7.

Meðaldalur - skráning landareignar - 2019050019

 

Tillaga 525. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 11.sept sl., um að heimila stofnun lóðar undir íbúðarhús í landi jarðarinnar Meðaldalur.

     

8.

Sundstræti göngustígur - Skipulag - 2019080029

 

Tillaga 525. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 11.sept sl.,um að bæjarstjórn að heimili óverulega breytingu á aðalskipulagi með hliðsjón af legu göngustígs, jafnframt að heimila verulega breytingu á gildandi deiliskipulagi þ.e. deiliskipulag Eyrarinnar dags. nóvember 1997. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að vegur austan Sundstrætis verði felldur út, og samræmi verði á milli aðalskipulags og deiliskipulags.

     

9.

Lýðskóli á Flateyri - 2016110085

 

Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn, í samræmi við bókun frá 1071. fundi bæjarráðs, að framlagður samningur milli Ísafjarðarbæjar og Lýðskólans á Flateyri vegna stuðnings Ísafjarðarbæjar við skólann á skólaárinu 2019-2020 verði
samþykktur.

     

10.

Viðaukar við fjárhagsáætlun 2019 - 2018120062

 

Tillaga 1073. fundar bæjarráðs frá 9. september sl., um að viðauki 9 við fjárhagsáætlun 2019 verði samþykktur. Um er að ræða 4,9 m.kr. vegna aukins kostnaðar vegna viðhalds á skíðalyftu á Miðfelli. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöður samantekins A og B hluta Ísafjarðarbæjar er lægri afkoma að fjárhæð 4.933.484,- eða úr afkomu 49.420.248,- í kr. 44.486.764,- en áhrifin á sveitasjóð A hluta er einnig kr. 4.933.484 og því eykst rekstrarhalli úr kr. 78.171.648,- í kr. 83.105.132,-.

     

11.

Fjárhagsáætlun 2020 - 2019030031

 

Tillaga 1074. fundar bæjarráðs frá 16. september sl., um að samþykkja tillögur að eftirfarandi forsendum í fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar vegna ársins 2020 og að gert verði ráð fyrir að þriggja ára áætlun fyrir árin 2021 til 2023 verði á sama verðlagi:

- Verðbólga 3,2%
- Gjaldskrár hámark 2,5%
- Launahækkun í samræmi við kjarasamninga eða 5,5%
- Útsvarstekjur samkvæmt áætlun sambandsins sem liggur fyrir í október
- Jöfnunarsjóður samkvæmt áætlun Jöfnunarsjóðs sem liggur fyrir í október

     

Fundargerðir til kynningar

12.

Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 166 - 1909003F

 

Fundargerð 166. fundar barnaverndarnefndar, sem haldinn var 12. september sl. Fundargerðin er í 4 liðum.

     

13.

Bæjarráð - 1073 - 1909011F

 

Fundargerð 1073. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 9. september sl. Fundargerðin er í 14 liðum.

     

14.

Bæjarráð - 1074 - 1909015F

 

Fundargerð 1074. fundar bæjarráð, sem haldinn var 16. september sl. Fundargerðin er í 7 liðum.

     

15.

Fræðslunefnd - 408 - 1909010F

 

Fundargerð 408. fundar fræðslunefndar, sem haldinn var 12. september sl. Fundargerðin er í 9 liðum.

     

16.

Hafnarstjórn - 206 - 1909005F

 

Fundargerð 206. fundar hafnarstjórnar, sem haldinn var 4. september sl. Fundargerðin er í 4 liðum.

     

17.

Nefnd um byggingu fjölnota knattspyrnuhúss - 13 - 1909008F

 

Fundargerð 13. fundar nefndar um byggingu fjölnota knattspyrnuhúss, sem haldinn var 5. september sl. Fundargerðin er í 1 lið.

     

18.

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 525 - 1909002F

 

Fundargerð 525. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 11. september sl. Fundargerðin er í 13 liðum.

     

19.

Velferðarnefnd - 441 - 1909001F

 

Fundargerð 441. fundar velferðarnefndar, sem haldinn var 5. september sl. Fundargerðin er í 1 lið.