428. fundur bæjarstjórnar

428. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, 20. desember 2018 og hefst kl. 17:00

Dagskrá:

Almenn mál

1.

Nýtt deiliskipulag við Hafrafell - 2018120038

 

Tillaga 510. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 18. desember um að heimila deiliskipulagsgerð fyrir svæði A13 og B51 sbr. núgildandi Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020.

     

2.

Deiliskipulag - Sæborg, Aðalvík - 2018040002

 

Tillaga 509. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 5. desember sl. um að samþykkja breytingar á áður auglýstum uppdrætti og greinargerð vegna deiliskipulags jarðarinnar Sæborgar í Aðalvík.

     

3.

Brekkustígur 5 - umsókn um lóð - 2018110067

 

Tillaga frá 509. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 5.des sl. um að Elías Guðmundsson fái lóð við Brekkustíg nr. 5 Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

     

4.

Stofnun lóðar - Ból 1 - 2018110083

 

Tillaga 509. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 5. desember um að heimila stofnun lóðar úr landi Selakirkjubóls 1.

     

5.

Eyrargata 15, Suðureyri - Ósk um endurnýjun lóðaleigusamnigs - 2018120002

 

Tillaga 509. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 5.desember. sl. um að heimila útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Eyrargötu 15, Suðureyri.

     

6.

Fjarskiptatenging á Ingjaldssand. - 2018110080

 

Tillaga 1043. fundar bæjarráðs um að samþykkja samning um uppsetningu og rekstur á örbylgjusambandi á Ingjaldssandi þar til ljósleiðarasamband verði í boði eða ábúð á heilsársgrundvelli leggst af og að bæjarstjórn feli bæjarstjóra að undirrita fyrirliggjandi samning.

     

7.

Viðaukar við fjárhagsáætlun 2019 - 2018120062

 

Tillaga 1043. fundar bæjarráðs og bæjarstjóra um að viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2019 verði samþykktur.

Viðaukinn varðar framkvæmdafé til hverfisráða í Ísafjarðarbæ, þar lagt er til að framkvæmdafé hverfisráðsins í Hnífsdal og hverfisráðsins í Dýrafirði vegna ársins 2018 verði frestað til ársins 2019. Því er lagður fram viðauki með tillögu um að 4 milljónir króna bætist við fjármagn til hverfisráða á árinu 2019. Framkæmdinni er mætt með ófyrirséðum kostnaði sem lækkar um 4 milljónir í 4 milljónir. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöður Ísafjarðarbæjar er 0 kr.

     

8.

Málefni leikskóla haust 2018 - 2018080029

 

Tillaga Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, staðgengils bæjarstjóra, að skipan í starfshóp sem skoðar starfsumhverfi barna og starfsmanna í leikskólum Ísafjarðarbæjar.

     

9.

Gjaldskrá fyrir akstur aldraðra og fatlaðra - 2018030083

 

Tillaga 1043. fundar bæjarráðs frá 17. desember sl., um að hækkun á gjaldskrá fyrir akstur aldraðra og fatlaðra verði tekin til baka.

     

Fundargerðir til kynningar

10.

Bæjarráð - 1042 - 1812008F

 

Fundargerð 1042. fundar bæjarráðs sem haldinn var 10. desember. Fundargerðin er í 9 liðum.

     

11.

Bæjarráð - 1043 - 1812013F

 

Fundargerð 1043. fundar bæjarráðs sem haldinn var 17. desember. Fundargerðin er í 15 liðum.

     

12.

Fræðslunefnd - 399 - 1812003F

 

Fundargerð 399. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 13. desember. Fundargerðin er í 4 liðum.

     

13.

Nefnd um byggingu fjölnota knattspyrnuhúss - 4 - 1812002F

 

Fundargerð 4. fundar nefndar um byggingu fjölnota knattspyrnuhúss sem haldinn var 7. desember. Fundargerðin er í 1 lið.

     

14.

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 509 - 1811021F

 

Fundargerð 509. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 5. desember. Fundargerðin er í 6 liðum.

     

15.

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 510 - 1812012F

 

Fundargerð 510. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 18. desember. Fundargerðin er í 5 liðum.

     

 

Þórdís Sif Sigurðardóttir, staðgengill bæjarstjóra.