21 verkefni hlutu styrk úr þróunarsjóði Flateyrar

Frá úthlutuninni á Gunnukaffi.
Frá úthlutuninni á Gunnukaffi.

Úthlutað hefur verið úr þróunarsjóði Flateyrar. Metfjöldi umsókna barst í ár og var niðurstaða verkefnisstjórnar, skipuð fulltrúum frá Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og hverfisráði Flateyrar, kynnt á Gunnukaffi á Flateyri í gær. 

Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar opnaði samkomuna með stuttri ræðu, Ragga og Kolbeinn, dúett úr Lýðskólanum, fluttu þrjú lög og formaður verkefnastjórnar, Sigríður Kristjánsdóttir, kynnti styrkveitingar og afhenti viðurkenningarskjöl.

Til úthlutunar voru 20 milljónir, en alls bárust 28 fjölbreyttar og áhugaverðar umsóknir þar sem í heildina var sótt um tæpar 45 miljónir. Heildarkostnaður verkefna hljóðaði upp á 60 miljónir.

Flestar umsóknir reyndust styrkhæfar og vísuðu með einum eða öðrum hætti til markmiða Flateyrarverkefnisins og niðurstaðna íbúaþings haustið 2021. Þrettán verkefni má flokka sem samfélagsverkefni og ellefu sem verkefni í atvinnu- og nýsköpun, en fjögur verkefni reyndust ekki styrkhæf m.a. vegna samkeppnisreglna. Mat verkefna tók mið af íbúasamráði í tengslum við samfélagsverkefni á Flateyri og markmið Sóknaráætlunar Vestfjarða.

Veittir voru verkefnastyrkir til 21 verkefnis. Hæstu styrkina fengu Kalksalt til þróunar á lýsissteinum, skautasvellið á Flateyri til áframhaldandi uppbyggingu svellsins og Snjóflóðasafnið á Flateyri.

Styrkhafar:

Vöruþróun í samstarfi við Matís og nýjar umbúðir, Kalksalt ehf: kr. 3.500.000
Skautasvell, Sigurður J. Hafberg: kr. 3.000.000
Snjóflóðasafnið á Flateyri – Húsnæði, Verzlunin Bræðurnir Eyjólfsson: kr. 2.000.000
Smáspunaverksmiðja í Önundarfirði, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir: kr. 1.000.000
Frisbígolfvöllur, Sigurður Grétar Jökulsson: kr. 1.000.000
Markaðssetning Skúrarinnar, Skúrin samfélagsmiðstöð ehf: kr. 1.000.000
Tvær stjörnur, Katrín Björk Guðjónsdóttir: kr. 1.000.000
Teikningar og rekstraráætlun fyrir stækkun á hóteli, Holt Inn ehf: kr. 900.000
Gráðostagerð í Önundarfirði – Hönnunarvinna, Elín Friðriksd. fh. Ostagerðarf. Önfirðinga: kr. 800.000
Eyvi kayaks, Eyvindur Atli Ásvaldsson: kr. 700.000
Búnaður fyrir Skúrina, Skúrin samfélagsmiðstöð ehf: kr. 650.000
Endurnýjun sextán söguskilta á Flateyri, Félagið Hús og fólk: kr. 650.000
Lýðskólinn á Flateyri: Miðstöð sköpunar, Lýðskólinn á Flateyri: kr. 600.000
Ocean Adventure Center, Nicole Sühring: kr. 600.000
Sameiginleg þvottaaðstaða, Nemendagarðar Lýðskólans á Flateyri ses: kr. 500.000
Leiksýning í fullri lengd, Leikfélag Flateyrar: kr. 500.000
Cerro de Plata: A branding and marketing consultancy based in Flateyri, Leiry Seron: kr. 450.000
Flateyri varanlegur reiðhjólaviðgerðastandur, Tyler Wacker: kr. 400.000
Co-living in Flateyri, Leiry Seron: kr. 400.000
Board game nights and tournaments, Helen Cova: kr. 250.000
Nostalgía - endurgerð gluggamynda, Kristbjörg Sunna Reynisdóttir: kr. 100.000

Þetta er í þriðja og næstsíðasta skipti sem úthlutað verður úr sjóðnum en síðasta úthlutun verður í byrjun árs 2023.