17. júní hátíðarhöld

Dagskrá hátíðahalda á þjóðhátíðardaginn á Ísafirði.

 

12:00-13:00 Brúðusmiðja Kómedíuleikhússins í Edinborgarhúsinu

13:15 Skrúðganga frá Silfurtorgi upp á Eyrartún

13:30-16:00 Hátíðardagskrá á Eyrartúni

  • Hátíðardagskrá sett af bæjarstjóra
  • Lúðrasveitin leikur fjörug lög
  • Hátíðarræða
  • Hátíðarkór flytur fjölbreytt og skemmtileg lög
  • Ávarp fjallkonu
  • Hoppukastalar, andlitsmálun, útileikir upp á gamla mátann, karamelluregn, börnum boðið á hestbak, sölutjöld körfuknattleiksdeildar Vestra og Dj Eisi.

13:30-16:00 Safnahúsið Ísafirði, opið hús

  • Í sýningarsal Listasafns Ísafjarðar verður sýning Ragnhildur Stefánsdóttur og Valgerðar Sigurðardóttur Aðlögun
  • Í sýningarrými í kjallara Safnahússins verður sýning Inga Bjössa opin
  • Á fyrstu hæð verður teiknistöð fyrir börn

14:00-16:30 Kökuhlaðborð meistaraflokks kvenna í knattspyrnu á Logni, Hótel Ísafirði

17:00 Pikknikk-tónleikar í Blómagarðinum, Austurvelli, Komdu með teppi, sestu í grasið og njóttu tónlistarinnar. Brekkusöngvarinn Ágúst og Vistarbandið í samstarfi við tónlistarhátíðina Við Djúpið. Matvagnar verða á staðnum.

20:00 Við Djúpið — Opnunarhátíð

Hrafnseyri

Vakin er athygli á hátíðardagskrá á Hrafnseyri 17. júní. Sjá dagskrá á www.hrafnseyri.is