17. júní 2022 – dagskrá hátíðarhalda

Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn hátíðlegur á Sjúkrahústúninu og í Blómagarðinum, Austurvelli á Ísafirði föstudaginn 17. júní. Einnig verða hátíðarhöld á Hrafnseyri.

Ísafjörður – dagskrá:

11:30-12:30 Andlitsmálun í boði í Safnahúsinu

12:30-13:05 Kómedíuleikhúsið sýnir Bakkabræður í Safnahúsinu
Viðburður á Facebook

13:45 Skrúðganga frá Silfurtorgi að hátíðarsvæði á Sjúkrahústúninu

14:00-16:00 Setning hátíðahalda á Sjúkrahústúninu

  • Lúðrasveit TÍ spilar fjöruga tóna
  • Hátíðarræða – Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir
  • Hátíðarkór. Stjórnandi: Tuuli Rähni
  • Ávarp fjallkonu
  • Hoppukastalar, sölutjöld, andlitsmálun og allskonar fjör

Viðburður á Facebook

15:00-17:00 Harmonikkuball í Tjöruhúsinu, Neðstakaupstað. Kaffiveitingar í boði Tjöruhússins.

15:00-17:00 Opið á sögusýningu um Húsmæðraskólann Ósk í Tónlistarskóla Ísafjarðar

16:30-18:00 Opnun sýningarinnar human · nature | mannleg · náttúra í Hversdagssafninu.
Viðburður á Facebook

18:00 Pikknikk-tónleikar í Blómagarðinum, Austurvelli
Fram koma Katla Vigdís og Salóme Katrín. Ókeypis aðgangur.

Léttar veitingar frá Heimabyggð til sölu í garðinum. 
Viðburður á Facebook

20:00 Hátíðartónleikar tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið í Hömrum
Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari leikur fjölbreytta tónlist fyrir
selló, meðal annars eftir Halldór Smárason.
Viðburður á Facebook

Hrafnseyri – dagskrá:

13:00 - 13:45 Hátíðarguðþjónusta: sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir prestur á Þingeyri prékdikar og þjónar fyrir altari.
Kirkjukór þingeyrarkirkju syngur undir stjórn Jóngunnars Biering Margeirssonar, sem einnig sér um undirspil.

14:15 Setning Þjóðhátíðar.

Hátíðarræða: Halldór Þorgeirsson, formaður loftlagsráðs.

15:00 Háskólahátíð í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda.

Tónlist: Bríet Vagna Birgisdóttir syngur.

Kynnir á hátíðinni er prófessor Guðmundur Hálfdanarson.

Hátíðinni verður streymt.

Opnun myndlistarsýningar sumarsins í burstabænum eftir myndlistarmanninn Þóri Frey Höskuldsson.

Einnig hefur listaverkefnið Umhverfing 4 fengið leyfi til að setja upp listsýningu í útihúsunum á Hrafnseyri, og verður hún opin fyrir hátíðargesti.

Kaffiveitingar á meðan hátíð stendur.

Rútuferð, Ísafjörður – Hrafnseyri, fólki að kostnaðarlausu.
Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 11:30.
Rútan fer frá Hrafnseyri kl. 17:00.

Vinsamlegast hafið samband við reception@uwestfjords.is eða í síma 450 3040 til að skrá ykkur í rútuna.

Kaffi og afmælisterta í boði Hrafnseyrar verður á meðan á dagskrá stendur fram til kl. 17:00. Einnig verður hægt að kaupa súpu með brauði.