Óskað eftir tilboðum í verkið endurnýjun þakkants á Torfnesi
Hér eru birtar fréttir af útboðum og framkvæmdum sem í gangi eru hjá Ísafjarðarbæ.
Hægt er að skoða staðsetningu framkvæmda inni á Kortasjá Ísafjarðarbæjar með því að haka í „Framkvæmdir“.
Hér verður birt yfirlit yfir þau útboð sem eru í gangi á vegum og/eða tengd Ísafjarðarbæ.
Upplýsingar um útboðin hverfa af vefnum þegar tilboðsfrestur rennur út eða eftir atvikum þegar tilboð hafa verið opnuð.
Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í endurbætur á þakkanti íþróttahússins á Torfnesi.
Helstu verkþættir eru eftirfarandi:
- Rif á klæðningu og krossvið 142 m2
- Rif á krossvið undir þakkant 192 m2
- Endurnýja krossvið framan á og undir þakkant 350 m2.
- Klæða þakkant með trapisuklæðningu 142 m2
- Mála undir þakkant 192 m2
Gögn verða afhent í tölvupósti frá og með 27. febrúar 2026.
Vinsamlega sendið tölvupóst á ebi@efla.is og óskið eftir gögnum.
Helstu dagsetningar:
- Verðfyrirspurn auglýst: 27. febrúar.2026
- Lokadagur fyrirspurna: 5. mars.2026
- Skilafrestur tilboða: 9. mars. 2026 kl. 11:00