Skóla- og tómstundasvið

Vegna endurbóta á fjórðu hæð Stjórnsýsluhússins hafa skrifstofur skóla- og tómstundasviðs verið færðar tímabundið á fjórðu hæðina á Hlíf.

Þar er hægt að taka á móti gestum en viðskiptavinum er bent á að hringja eða senda tölvupóst á þann starfsmann sem óskað er eftir að hitta. Einnig er hægt að bóka tíma rafrænt á bókunarvef.

Afgreiðslutími skóla- og tómstundasviðs

Mánudagar-fimmtudagar: 10:00-12:00 og 12:30-15:00
Föstudagar: 10:00-12:00

Viðtalstímar eru í boði mánudaga-fimmtudaga kl. 13-15. Tekið er við tímabókunum í síma 450 8000 kl. 08-16 á virkum dögum.

Skóla- og tómstundasvið Ísafjarðarbæjar nær yfir málaflokkana fræðslumál og íþrótta- og tómstundamál. Undir sviðið heyra t.d. allir leik- og grunnskólar bæjarins, íþróttamannvirki og dagforeldrar.

Sviðsstjóri er Hafdís Gunnarsdóttir, skóla- og sérkennslufulltrúi er Guðrún Birgisdóttir og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi er Dagný Finnbjörnsdóttir

Hægt er að sækja um leikskólapláss, skrá börn í grunnskóla og dægradvöl í gegnum þjónustugátt.


Hafa samband:

Hafnarstræti 1
400 Ísafjörður
Sími: 450 8000
hafdisgu@isafjordur.is

Er hægt að bæta efnið á síðunni?