Velferðarnefnd

428. fundur 15. maí 2018 kl. 16:00 - 17:10 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir formaður
  • Magnús Þór Bjarnason varaformaður
  • Hildur Elísabet Pétursdóttir aðalmaður
  • Steinþór Bragason aðalmaður
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Anna Valgerður Einarsdóttir deildarstjóri barnaverndar
  • Þóra Marý Arnórsdóttir deildarstjóri fötlunarþjónustu
  • Dagný Sif Snæbjarnardóttir ráðgjafi á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri í félagsþjónustu
Dagskrá
Guðjón Már Þorsteinsson mætti ekki og enginn í hans stað. Sólveig Sigríður Guðnadóttir mætti ekki og engin í hennar stað.
Sif Huld Albertsdóttir, Pétur Markan og Gísli Halldór Halldórsson mættu til fundar.

1.BsVest - ýmis mál 2018 - 2018020001

Sif Huld Albertsdóttir mætti fyrir hönd BsVest til að kynna starfsemi BsVest, að ósk nefndarinnar. Jafnframt mætti Pétur Markan, formaður stjórnar BsVest en hann óskaði eftir að mæta til fundarins. Jafnframt sat Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar fundinn.
Velferðarnefnd þakkar Sif Huld Albertsdóttur og Pétri Markan fyrir kynninguna. Aðilar eru sammála um að nauðsynlegt sé að sveitarfélögin sem aðild eiga að BsVest ræði saman um með hvaða hætti unnt sé að vinna að málefnum fatlaðra á Vestfjörðum.
Sif Huld, Pétur og Gísli Halldór fóru af fundi.

2.Fundargerðir verkefnahóps BSVest. - 2011090092

Lagðar fram fundargerðir frá 65., 66. og 67. fundum verkefnahóps BsVest.
Lagt fram til kynningar.

3.Trúnaðarmál. - 2011090094

Tvö trúnaðarmál kynnt velferðarnefnd.
Trúnaðarmálin afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók velferðarnefndar.

Fundi slitið - kl. 17:10.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?