Velferðarnefnd

370. fundur 28. ágúst 2012 kl. 16:00 - 18:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir 370. fundur félagsmálanefndar Ísafjarðarbæjar
Dagskrá
Gunnar Þórðarson boðaði forföll og enginn mætti í hans stað. Jón Reynir mætti ekki og enginn í hans stað.

1.Trúnaðarmál. - 2011090094

Tíu trúnaðarmál lögð fram til umræðu.

Trúnaðarmálin afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

2.Leyfi til daggæslu í heimahúsi - 2012080043

Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur dags. 27. ágúst 2012 þar sem Bergdís Ingibergsdóttir, Lyngholti 1, Ísafirði, óskar eftir leyfi til daggæslu barna í heimahúsi. Fyrir liggja samþykkt vottorð.

Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir umsækjanda leyfi til daggæslu í heimahúsi á grundvelli greinargerðar Sigurlínu. Leyfið verði endurskoðað að einu ári liðnu.

 

Dagforeldrinu er heimilað að gæta fjögurra barna, frá 6 mánaða aldri. Ekki er heimilt að á hverjum tíma séu fleiri en tvö börn undir eins árs aldri.

3.Byggðasamlag - Ýmis erindi 2012 - 2012020063

Lagt fram bréf frá Byggðasamlagi Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks dags 11. júní 2012. Vísað er til fundar stjórnar BsVest þar sem samþykkt var að vísa drögum að reglum um stuðningsfjölskyldur til sveitarfélaga og hagsmunasamtaka.

Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að hún geri það einnig.

4.Byggðasamlag - Ýmis erindi 2012 - 2012020063

Sviðsstjóri greindi frá framkvæmdum í Sindragötu 4, stöðu mála í búsetu og fjárhagslegri niðurstöðu ársins 2011.

Umræður um málefnin.

5.Ferliþjónusta í Ísafjarðarbæ. - 2012080044

Lagður fram samningur milli Ísafjarðarbæjar og Blindrafélagsins um ferliþjónustu fyrir blinda. Samningurinn gildir frá 15. ágúst 2012 til 31. desember 2012.

Lagt fram til kynningar og starfsmönnum falið að gera breytingar á samningnum í samræmi við umræður á fundinum.

6.Afhending skýrslu um stöðu jafnréttismála hjá sveitarfélaginu - 2012080009

Lagt fram bréf frá Jafnréttisstofu dags. 27. júlí 2012 þar sem óskað er eftir skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála í sveitarfélaginu. Gefinn er frestur til 31. október 2012 til að skila skýrslunni.

Félagmálanefnd felur starfmanni að svara bréfi Jafnréttisstofu.

7.Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2014, 44. mál - tillaga til þingsályktunar - 2012080042

Lögð fram tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2014.

Félagsmálanefnd felur Margréti Geirsdóttur og Hörpu Stefánsdóttur að vera tengiliðir við Velferðarráðuneytið í tengslum við framkvæmdaáætlunina.

8.Fundargerðir verkefnahóps BSVest. - 2011090092

Lagðar fram fundargerðir 18. og 19. fundar verkefnahóps Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar og umræður.

Önnur mál
a) Lengd viðvera fatlaðra barna.
Félagsmálanefnd leggur til að lengd viðvera fatlaðra barna verði skilgreind sérstaklega og aðskilin frá öðrum rekstri frá og með janúar 2013.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?