Velferðarnefnd

414. fundur 29. desember 2016 kl. 10:00 - 12:55 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir formaður
  • Magnús Þór Bjarnason varaformaður
  • Hildur Elísabet Pétursdóttir aðalmaður
  • Steinþór Bragason aðalmaður
Starfsmenn
  • Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þóra Marý Arnórsdóttir deildarstjóri fötlunarþjónustu
  • Dagný Sif Snæbjarnardóttir ráðgjafi á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri í félagsþjónustu
Dagskrá
Guðjón Már Þorsteinsson boðaði forföll og enginn komst í hans stað. Sólveig S. Guðnadóttir mætti ekki og enginn í hennar stað.

1.Trúnaðarmál. - 2011090094

Eitt trúnaðarmál lagt fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd.
Trúnaðarmálið afgreitt og fært til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

2.Fjárhagsaðstoð - 2012120016

Lögð fram drög að nýjum reglum um fjárhagsaðstoð hjá Ísafjarðarbæ.
Félagsmálanefnd felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að gera breytingar á reglunum í samræmi við umræður á fundinum og leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að reglurnar verði samþykktar.

3.Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning hjá Ísafjarðarbæ. - 2016120045

Lögð fram drög að reglum um sérstakan húsnæðisstuðning hjá Ísafjarðarbæ.
Félagsmálanefnd felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að gera breytingar á reglunum í samræmi við umræður á fundinum og leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að reglurnar verði samþykktar.

Fundi slitið - kl. 12:55.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?