Velferðarnefnd

409. fundur 10. maí 2016 kl. 16:00 - 18:05 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir formaður
  • Hildur Elísabet Pétursdóttir aðalmaður
  • Steinþór Bragason aðalmaður
  • Magnús Þór Bjarnason aðalmaður
  • Sólveig Guðnadóttir áheyrnarfulltrúi
  • Tinna Hrund Hlynsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri í félagsþjónustu.
Dagskrá
Guðjón Þorsteinsson boðaði forföll og í hans stað mætti Tinna Hrund Hlynsdóttir.

1.Trúnaðarmál. - 2011090094

Tvö trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd.
Trúnaðarmálin afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

2.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2016 - 2016010027

Bæjarráð vísar beiðni allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um umsögn við tillögu til þingsályktunar um stofnun embættis umboðsmanns flóttamanna, 449. mál, til félagsmálanefndar.
Lagt fram til kynningar.

3.Aðgengismál fatlaðra, styrkumsókn - 2015080052

Á fundi félagsmálanefndar þann 15. mars sl. fjallaði félagsmálanefnd um greinargerð Verkís um úttekt á aðgengi að stofnunum í eigu Ísafjarðarbæjar í þéttbýliskjörnunum í Ísafjarðarbæ. Félagsmálanefnd fól starfsfólki fjölskyldusviðs að koma með tillögur að bættu aðgengi fyrir fatlaða í sveitarfélaginu.
Umræður um tillögur greinargerðarinnar og hugmyndir að forgangsröðun. Félagsmálanefnd leggur til að áhersla verði lögð á eftirtalin forgangsverkefni: 1. Aðgengi og bílaplan við Pollgötu 4. 2. Aðgengi við íþróttahúsið á Torfnesi samkvæmt tillögum í greinargerð Verkís. 3. Aðgengi við íþróttahúsið á Þingeyri. Nefndin felur starfsmanni að koma á framfæri athugasemdum varðandi útfærslu á aðgengi í greinargerðinni.

4.Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047

Umræður um gjaldskrár fyrir fjölskyldusvið fyrir árið 2017.
Félagsmálanefnd felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að gera breytingar á gjaldskránni í samræmi við umræður á fundinum.

5.Aðstaða heimahjúkrunar HV á Hlíf - 2010030077

Lagt fram bréf dags. 11. apríl 2016 frá Þresti Óskarssyni forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða þar sem leigu á aðstöðu fyrir heimahjúkrunardeild á Hlíf er sagt upp.
Lagt fram til kynningar.

6.Ársskýrsla Starfsendurhæfingar Vestfjarða 2015. - 2016050025

Lögð fram dagsskrá aðalfundar Starfsendurhæfingar Vestfjarða fyrir árið 2016 ásamt ársreikningi og ársskýrslu Starfsendurhæfingarinnar fyrir árið 2015.
Lagt fram til kynningar.

7.Fjárhagsaðstoð - 2012120016

Lagt fram vinnuskjal með drögum að nýjum reglum um fjárhagsaðstoð.
Umræður um nýjar reglur. Starfsmanni falið að vinna áfram að reglunum.

Fundi slitið - kl. 18:05.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?