Velferðarnefnd

365. fundur 14. febrúar 2012 kl. 16:00 - 18:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir 365. Fundur félagsmálanefndar Ísafjarðarbæjar
Dagskrá
Gunnar Þórðarson mætti ekki og enginn varamaður kom í hans stað. Sif Huld Albertsdóttir nemi í þroskaþjálfafræðum sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi.

1.Undanþága vegna fjölda barna í daggæslu. - 2012010012

Lagt fram erindi frá Ólöfu Á. Öfjörð dagforeldri þar sem hún óskar eftir endurskoðun á synjun um undandágu vegna fjölda barna í daggæslu en Ólöf óskar eftir samþykki til að taka 6. barnið í vistun.



Sigurlína Jónasdóttir daggæslu- og leikskólafulltrúi mætti til fundar undir þessum lið og svaraði spurningum nefndarmanna vegna þessa erindis.


Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar frestar afgreiðslu á erindinu til næsta fundar nefndarinnar og felur starfsmönnum að afla upplýsinga frá öðrum sveitarfélögum um sambærileg mál.

2.Trúnaðarmál. - 2011090094

Trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd.





10 trúnaðarmál bókuð í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

3.Starfsmannahandbók. - 2012010013

Lögð fram starfsmannahandbók fyrir þjónustueiningar á fjölskyldusviði Ísafjarðarbæjar ásamt sér köflum fyrir málefni aldraðra og málefni fatlaðra.



Félagsmálanefnd lýsir ánægju sinni með handbókina og felur starfsmönnum að gera breytingar í samræmi við umræður á fundinum og í kjölfarið að hefja kynningu á henni.

4.Samþykkt um skipan félagsmála í Ísafjarðarbæ. - 2012020051

Lögð fram samþykkt um skipan félagsmála í Ísafjarðarbæ sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 19. desember árið 2000.



Félagsmálanefnd felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að hefja vinnu við endurskoðun samþykktar um skipan félagsmála í Ísafjarðarbæ og leggja drög að nýrri skipan fyrir næsta fund nefndarinnar.

5.Verklagsreglur starfsmanna í félagsþjónustu. - 2012020052

Lögð fram fyrstu drög að verklagsreglum starfsmanna í félagsþjónustu er starfa hjá fjölskyldusviði Ísafjarðar.




Lagt fram til kynningar.

6.Fjölskyldusvið Ísafjarðarbæjar. - 2012020053

Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar lagði fram skýrslu um málefni fatlaðra hjá sveitarfélaginu árið 2011.



Skýrslan lögð fram til kynningar. 

7.Félagsleg heimaþjónusta - 2012010079

Umræður um félagslega heimaþjónustu. Endurskoða þarf gjaldskrá heimaþjónustunnar með tilliti til helgarþjónustu og tekjuviðmiða.



Félagsmálanefnd felur deildarstjóra í heimaþjónustu og deildarstjóra í félagsþjónustu að endurskoða gjaldskrána og koma með tillögur á næsta fund nefndarinnar. 

8.Styrkir til sveitarfélaga vegna langveikra barna og barna með ADHD - 2010110008

Lagt fram áframsent erindi frá bæjarráði sem er bréf frá velferðarráðuneyti dagsett 30. desember sl., þar sem fram kemur, að Ísafjarðarbær hefur hlotið loforð um styrk að upphæð kr. 1.620.000.-, til verkefna í þágu langveikra barna og barna með ADHD-greiningu.

Jafnframt lagt fram bréf Hörpu Stefánsdóttur dags. 30. janúar s.l. þar sem tilkynnt er að Ísafjarðarbær þiggi styrkinn og greint er frá kostnaðaráætlun og aðgerðaráætlun verkefnisins.


Félagsmálanefnd fagnar styrkveitingunni og lýsir ánægju sinni með verkefnið sem styrknum er veitt til.

9.Styrkbeiðni vegna forvarnastarfs 2012 - 2012010047

Lagt fram áframsent erindi frá bæjarráði sem er bréf frá Saman-hópnum dagsett 13. janúar s.l., þar sem beðið er um fjárstuðning vegna forvarnarstarfs á árinu 2012. Leiðarljós í starfi hópsins eru niðurstöður rannsókna sem sýna mikilvægi og áhrifamátt foreldra í forvörnum.


Félagsmálanefnd telur sér ekki fært að styðja framtakið þar sem nefndin styrkir sambærileg verkefni í heimabyggð en óskar Saman-hópnum velfarnaðar í störfum sínum.

10.Fundargerðir Þjónustuhópur aldraðra 2007- - 2007030053

Lögð fram fundargerð 69. fundar þjónustuhóps aldraðra.


 Lagt fram til kynningar.

11.Fundargerðir 2010/2011 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði - 2010070042

Lagðar fram fundargerðir 10., 11., 12., 13. og 14. fundar nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði.




Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

Önnur mál.
A) Almenningssamgöngur í Ísafjarðarbæ 2012-2016. 2012-02-0018

Félagsmálanefnd telur ekki ástæðu til gera breytingar á núgildandi gjaldskrá á almenningssamgöngum en telur rétt að benda á að samkvæmt lögum eru einstaklingar skilgreindir sem börn til 18 ára aldurs.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?