Velferðarnefnd

404. fundur 24. nóvember 2015 kl. 16:00 - 17:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir formaður
  • Helga Björk Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Hildur Elísabet Pétursdóttir aðalmaður
  • Guðjón Már Þorsteinsson aðalmaður
  • Arna Ýr Kristinsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir 404. fundur félagsmálanefndar Ísafjarðarbæjar
Dagskrá
Steinþór Bragason boðaði forföll og í hans stað mætti Arna Ýr Kristinsdóttir. Sólveig Sigríður Guðnadóttir mætti ekki og engin í hennar stað.
Hildur Elísabet Pétursdóttir mætti til fundar kl. 15:25.

1.Trúnaðarmál. - 2011090094

Sjö trúnaðarmál lögð fram í félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar.
Trúnaðarmálin afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

2.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2015 - 2015020078

Lagt fram erindi frá nefndarsviði Alþingis þar sem velferðarnefnd sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára, 338. mál.
Félagsmálanefnd felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að senda nefndarsviði Alþingis athugasemdir við stefnuna og aðgerðaráætlunina í samræmi við umræður á fundinum.
Margrét Geirsdóttir fór af fundinum.

3.Daggæsla barna í heimahúsum. - 2015110053

Með vísan til reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005 er það hlutverk félagsmálanefndar Ísafjarðarbæjar að veita leyfi til daggæslu barna í heimahúsum. Samkvæmt reglugerðinni getur sveitarstjórn ákveðið að önnur nefnd veiti leyfið.
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar leggur til við bæjarráð Ísafjarðarbæjar að meðferð umsókna um leyfi til daggæslu í heimahúsum verði flutt af verksviði nefndarinnar til fræðslunefndar. Félagsmálanefnd telur að þar sem öll önnur mál sem varða daggæslu í heimahúsum séu á hendi fræðslunefndar skapi það betri yfirsýn yfir málaflokkinn að hlutverkinu sé ekki skipt á milli tveggja nefnda.

Arna Ýr Kristinsdóttir yfirgaf fundinn undir þessum lið.

4.Umsókn um að gerast dagforeldri - 2015090048

Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur dags 6. nóvember 2015 þar sem Arna Ýr Kristinsdóttir kt. 110482-4349, sækir um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi hjá Ísafjarðarbæ. Starfsemin muni fara fram á heimili hennar að Miðtúni 37 á Ísafirði. Tilskilin vottorð liggja fyrir.
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir umsækjanda leyfi til daggæslu á grundvelli greinargerðar Sigurlínu. Dagforeldrinu er heimilað að gæta fjögurra barna, frá sex mánaða aldri. Ekki er heimilt að á hverjum tíma séu fleiri en tvö börn undir eins árs aldri. Að ári liðnu skal endurnýja leyfið skv. reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005.
Helga Björk Jóhannsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.

Fundi slitið - kl. 17:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?