Velferðarnefnd

403. fundur 03. nóvember 2015 kl. 16:00 - 18:05 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir formaður
  • Helga Björk Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Steinþór Bragason aðalmaður
  • Arna Ýr Kristinsdóttir varamaður
  • Sólveig Guðnadóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðjón Már Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Anna Valgerður Einarsdóttir deildarstjóri barnaverndar
  • Þóra Marý Arnórsdóttir deildarstjóri fötlunarþjónustu
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir 403. fundur félagsmálanefndar
Dagskrá
Hildur Elísabet Pétursdóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Arna Ýr Kristinsdóttir.

1.Sumardvöl fatlaðra barna í Reykjadal 2014-2016 - 2014090056

Lagt fram erindi frá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra dags. 16. september 2015 þar sem óskað er eftir þátttöku í kostnaði við rekstur sumarbúðanna að fjárhæð kr. 140.700,-. Tveir einstaklingar úr sveitarfélaginu dvöldust í sumarbúðunum s.l. sumar.
Félagsmálanefnd samþykkir erindið enda er gert ráð fyrir styrknum í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015.

2.Fjárhagsáætlun 2016 - 2015030048

Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun fyrir fjölskyldusvið fyrir árið 2016.
Nefndin styður tillögu varðandi fjölgun stöðugilda sem nemur 50% stöðugildi félagsráðgjafa á sviðinu. Jafnframt styður nefndin umsókn um framlag vegna fjölsmiðju, enda komi Vinnumálastofnun og Menntamálaráðuneyti að rekstrinum með styrkjum. Að síðustu vill nefndin staðfesta framkominn vilja bæjarstjórnar um móttöku flóttamanna en leggur til að viðmiðunarfjárhæð í fjárhagsáætlun verði hækkuð. Varðandi umsókn um styrk frá Sólstöfum Vestfjarða vísar nefndin til bókunar á fundi nr. 402.

3.Umsókn um að gerast dagforeldri - 2014030022

Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur, dags. 30. október 2015, þar sem Ása Rut Halldórsdóttir kt. 1080681-3649 sækir um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi hjá Ísafjarðarbæ. Starfsemin muni fara fram á heimili hennar að Hlégerði 2 í Hnífsdal. Tilskilin vottorð liggja fyrir.

Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir umsækjanda leyfi til daggæslu á grundvelli greinargerðar Sigurlínu. Dagforeldrinu er heimilað að gæta fjögurra barna, frá sex mánaða aldri. Ekki er heimilt að á hverjum tíma séu fleiri en tvö börn undir eins árs aldri. Að ári liðnu skal endurnýja leyfið skv. reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005.

4.Móttökuáætlun innflytjenda - 2015010086

Félagsmálanefnd ræddi gerð móttökuáætlunar fyrir innflytjendur og stefnir að því að hefja vinnu við áætlunina hið fyrsta.
Félagsmálanefnd leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að Védís Geirsdóttir verði skipuð í vinnuhóp með starfsmönnum á fjölskyldusviði um gerð áætlunarinnar.

5.Fundargerðir stjórnar BSVest. - 2015030003

Lögð fram fundargerð stjórnar BsVest frá 21. fundi sem haldinn var þann 11. maí 2015.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

6.Fundargerðir verkefnahóps BSVest. - 2011090092

Lagðar fram fundargerðir verkefnahóps BsVest frá 50. og 51. fundi.
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:05.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?