Velferðarnefnd

394. fundur 22. janúar 2015 kl. 12:00 - 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir formaður
  • Helga Björk Jóhannsdóttir varamaður
  • Aron Guðmundsson aðalmaður
  • Hildur Elísabet Pétursdóttir aðalmaður
  • Arna Ýr Kristinsdóttir varamaður
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hafdís Gunnarsdóttir ráðgjafi á fjölskyldusviði
  • Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • Anna Valgerður Einarsdóttir deildarstjóri barnaverndar
  • Þóra Marý Arnórsdóttir deildarstjóri fötlunarþjónustu
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir 394. fundur félagsmálanefndar Ísafjarðarbæjar
Dagskrá
Steinþór Bragason boðaði forföll og í hans stað mætti Arna Ýr Kristinsdóttir. Guðný Harpa Henrysdóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Helga Björk Jóhannsdóttir. Sólveig Guðnadóttir áheyrnarfulltrúi boðaði forföll og enginn mætti í hennar stað.

1.Trúnaðarmál. - 2011090094

Tvö trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu.
Trúnaðarmálin rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

2.Samb.ísl.sveitarf. - Ýmis erindi og fundargerðir 2015 - 2015010049

Lagður er fram tölvupóstur Önnu Guðrúnar Björnsdóttur, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga, frá 8. janúar sl., þar sem komið er á framfæri ábendingum um málefni innflytjenda. Jafnframt lögð fram tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda til ársins 2018.
Lagt fram til kynningar.

3.Móttökuáætlun innflytjenda - 2015010086

Starfsmenn fjölskyldusviðs greindu frá því að halda þurfi áfram með að vinna móttökuáætlun í málefnum nýrra íbúa sveitarfélagsins.
Formaður félagsmálanefndar ætlar að vinna með starfsmönnum að gerð áætlunarinnar sem lögð verður fyrir nefndina eftir því sem málinu vindur fram.

4.Jafnréttisáætlun og jafnlaunakönnun - 2010050008

Lögð fram jafnréttisáætlun Ísafjarðarbæjar sem staðfest var 2012.
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar mun hefja vinnu við endurskoðun á jafnréttisáætlun Ísafjarðarbæjar.

5.Samb.ísl.sveitarf. - Ýmis erindi og fundargerðir 2015 - 2015010049

Lagður fram tölvupóstur frá Gyðu Hjartardóttur félagsþjónustufulltrúa hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags 8. janúar s.l. þar sem minnt er á mikilvægi þess að félagsmálastjórar haldi sérstaklega utan um þann fjölda sem sækir um fjárhagsaðstoð vegna styttingar á tímabili atvinnuleysisbóta.
Lagt fram til kynningar.

6.Fundargerðir verkefnahóps BSVest. - 2011090092

Lögð fram fundargerð verkefnahóps BSVest frá 43. fundi.
Lagt fram til kynningar og umræður um fundargerðina.

7.Fjárhagsaðstoð - 2012120016

Starfsmenn greindu frá framvindu vinnu við endurskoðun á reglum Ísafjarðarbæjar um fjáhagsaðstoð.
Umræður um reglurnar.

8.Geðhjálp, kynningarfundur á Ísafirði - 2015010087

Lagður fram tölvupóstur frá Önnu G. Ólafsdóttur framkvæmdastjóra Geðhjálpar dags. 16. janúar s.l. þar sem auglýstur er kynningarfundur Geðhjálpar á Ísafirði þann 5. febrúar n.k.
Lagt fram til kynningar.

9.Félag heyrnarlausra, 55 ára afmæli. - 2015010088

Lagður fram tölvupóstur frá Þresti Friðþjófssyni markaðs- og fjáröflunarstjóra hjá Félagi heyrnarlausra, dags. 8. janúar s.l. þar sem kynnt eru verkefni félagsins á árinu 2015 og óskað eftir fjárframlagi. Félagið á 55 ára afmæli 11. febrúar n.k.
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar sér sér ekki fært að styrkja félagið að svo stöddu.

Fundi slitið - kl. 14:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?