Velferðarnefnd
Dagskrá
Salbjörg Sigurðardóttir mætti ekki til fundar.
1.Fræðsla fyrir kjörna fulltrúa 2026 - 2026060025
Bryndís Ósk Jónsdóttir, bæjarritari, mætir til fundar með fræðslu fyrir nýkjörna fulltrúa.
Kynning og umræður. Nefndin þakkar bæjarritara kynninguna.
Bæjarritari vék af fundi kl.12:22
Gestir
- Bryndís Ósk Jónsdóttir sviðstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs /bæjarritari - mæting: 12:00
2.Trúnaðarmál - velferðarnefnd - 2026010087
Eitt trúnaðarmál lagt fyrir.
Trúnaðarmál rætt og afgreitt, fært til bókar í trúnaðarmálamöppu velferðarnefndar.
3.Gjaldskrár 2027 - 2026030239
Fyrsta umræða um gjaldskrá velferðarsviðs fyrir árið 2027. Lögð fyrir greinargerð, dagsett 10. júní 2026 frá Hörpu Stefánsdóttur deildarstjóra í félagsþjónustu um undirbúningsvinnu fyrir gjaldskrá 2027.
Umræður fóru fram um gjaldskrána, hún verður lögð fyrir á ný á fundi í nefndarinnar í ágúst.
4.Fullnaðarákvarðanir 2026 - 2025120075
Lagðar fram upplýsingar um fullnaðarafgreiðslu mála í félagsþjónustu á velferðarsviði Ísafjarðarbæjar fyrir janúar til og með maí 2026.
Máli frestað til næsta fundar.
5.Sískráning 2026 - 2026030258
Lögð fram sískráning barnaverndartilkynninga til barnaverndarþjónustu Vestfjarða fyrir janúar til og með maí 2026.
Máli frestað til næsta fundar.
6.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram til samráðs mál frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytið nr. 63/2026, Drög að reglugerð um aðstoðarmannakort fatlaðs fólks. Umsagnarfrestur er til og með 19. júní 2026.
Máli frestað til næsta fundar.
7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram til samráðs mál nr. 98/2026 frá Heilbrigðisráðuneytinu. Drög að aðgerðaráætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun fyrir árið 2026 - 2030. Umsagnarfrestur er til og með 30. júní 2026.
Máli frestað til næsta fundar.
8.Ýmis erindi velferðarsviðs - 2025110195
Lagðar fram til kynningar niðurstöður ungmennaþings 2026 í málum sem varða ofbeldi í nánum samböndum unglinga. Þing var haldið á Ísafirði þann 8. apríl 2026 en Barnaheill hélt sambærileg þing á sex stöðum á landinu.
Máli frestað til næsta fundar.
Fundi slitið - kl. 13:35.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?